Ég held að svarið við báðum gátunum sé Lús. Felur súg
Ýmsra í tranti er.
Eymdin sem kratar hata.
Hér eru hreiður ger.
Höfuðfat glataðra rata.
Ekki var það lús. Þær þrífast ekki vel í tröntum.
Þá myndi ég vilja prófa að máta haft við þessa gátu.
Meðan við bíðum, þá er hér ein auðveld. Galli við þessa vísu er að hún nær ekki alveg utan um sjálfa sig og á einum stað þarf að bæta við i til að gátan falli ekki um koll.
Barnið hans var heljargljúpt.
Hreyfist oftast bulli við.
Syndir flöt um sullið djúpt.
Síðast skaltu kalla á smið.
Ekki passar lús heldur við þessa gátu.... nema ef hægt er að sannfæra mig um að svo sé. Annað orð var í mínum huga alltént...
Ekki haft.
[quote="hlewagastiR"]
Ýmsra í tranti er.
Eymdin sem kratar hata.
Hér eru hreiður ger.
Höfuðfat glataðra rata.
Ég ætla að giska á að svarið sé króna, það passar allavega við tvær fyrstu línurnar.
Þá dúndrum við í nýja gátu:
Ýmsra í tranti er. - Tannkróna
Eymdin sem kratar hata. - krónan
Hér eru hreiður ger. - Trjákróna
Höfuðfat glataðra rata.- Króna, svona eins og króna? ég botna ekkert í þessu
Þá dúndrum við í nýja gátu:
Ýmsra í tranti er. - Tannkróna
Eymdin sem kratar hata. - krónan
Hér eru hreiður ger. - Trjákróna
Höfuðfat glataðra rata.- Króna, svona eins og króna? ég botna ekkert í þessu
Króna = kóróna
Þá sýnist mér þetta allt komið úr minni gátu.
Þorir enginn að giska hjá mér?
Meðan við bíðum, þá er hér ein auðveld. Galli við þessa vísu er að hún nær ekki alveg utan um sjálfa sig og á einum stað þarf að bæta við i til að gátan falli ekki um koll.
Barnið hans var heljargljúpt.
Hreyfist oftast bulli við.
Syndir flöt um sullið djúpt.
Síðast skaltu kalla á smið.
Í fyrstu línu er um að ræða persónu, karlkyns og nafnið endar á i. Þegar i-ið er tekið í burtu, þá birtist úr hinum línunum lausnin - sem er þá hvorukynsorð...
Lok?
Regína með það -
Barnið hans var heljargljúpt. - Loki, barnið hans var Hel
Hreyfist oftast bulli við. - Lok, hreyfist við suðu í potti
Syndir flöt um sullið djúpt. - Lok, lúðulokið syndir um sjóin - flatfiskur
Síðast skaltu kalla á smið. - Að lokum skaltu fá þér smið til að smíða lok á kistuna...
Var þetta of langsótt?
Ég fattaði fyrstu tvö allavega, en ég hef aldrei heyrt lúðu kallaða lok.
Regína með það -
Var þetta of langsótt?
Nei en þú hefðir átt að pína hana til að koma með rökstuðning.
Hemlavirkni hollur er.
Helst á þennan réttur fer.
Músavinur margoft sér.
Mynd og hljóð í sellum ber.
Filma?