(Sum sagt, bje er þarna tónninn á milli a-ís/bes og c.)
Þ.e.a.s. H.
Starir strunsandi út af sviðinu út í loftið þegjandi um á gólfinu
Þér, sem sagt, finnst það lógískt að menn hafi hoppað yfir bjeið og troðið hái inn í staðinn eins og skrattanum ofan í sauðarlegginn? Strunsar ekki neitt en stendur fastur á sínu bjei
Slaghörpuna slær hann á.
Slöngutuðru leggur.
Sjómennskunni segir frá.
Segg og annan heggur.
Egill?
Mér finnst Egill bara passa við síðustu línuna. Svo að ekki er það Egill.
Víkingur
Slaghörpuna slær hann á. - Víkingur Heiðar
Slöngutuðru leggur. - knattspyrnumaður í Víkingi
Sjómennskunni segir frá. - Sjómannablaðið Víkingur
Segg og annan heggur. - Víkingur í þá gömlu góðu... t.d. Egill
Þetta er algjörlega gjörsamlega hárrétt.
Gengur lax í ánni enn
útvíkkaði sokka í den
í hendi guðs úr hafi er
í heyskap gjarnan bjargar mér.
Kvísl?
Kvísl?
Rétt - og ég sem hélt hún væri erfið þessi!
(Sum sagt, bje er þarna tónninn á milli a-ís/bes og c.)
Þ.e.a.s. H.
Starir strunsandi út af sviðinu út í loftið þegjandi um á gólfinu
Þér, sem sagt, finnst það lógískt að menn hafi hoppað yfir bjeið og troðið hái inn í staðinn eins og skrattanum ofan í sauðarlegginn? Strunsar ekki neitt en stendur fastur á sínu bjei
Lógískt? Nei. Skemmtilega yfirgengilega þrjóskt? Já.
Mér finnst Egill bara passa við síðustu línuna. Svo að ekki er það Egill.
Var Egill ekki víkingurinn? Glottir eins og fífl
Ég drekk bæði Egil og Viking.
Verndaði líf í vikur þrjár
Vanga margra prýðir
Með fjóra liti, frekar smár
Flesta bíla skrýðir.
Gæti þetta verið púði?