Jú jú, ætl'ekki það. Ljómar upp
Hangikjötið fínt og feitt. (6 feitt (hangi)kjöt, fita í kjöti.)
Finnst sem orð um siglutré. (5 siglutré.)
Liljuættkvísl; álegg sneitt. (1 ein ættkvísl plantna af liljuætt (allium): / 2 tegund jarðsprota með þykkum safaríkum forðablöðum.)
Eldhúss táravaki sé. (Að laukur sé eldhússins táravaki er víst ekki ofmælt.)
Já, ég er - en efast samt.
Augum þig ég kanna.
Einkunn bág sem ber mann skammt.
Bandalag jafnaðarmanna.
Getur þetta verið sjé? (Var BJ kannski með kosningabókstafinn C?)
Jújú, víst er það Billi. Sé er svo auðvitað er í viðtengingarhætti. Þar er vafinn.
Tigin kona telst hún víst.
Táknið systir fram nú brýst.
Kvenkyns fylgju fæ hér lýst.
Fimmund, stækkuð: bje af hlýst.
Nú er spurning hvort þú átt við "djass" b eða "klassískt" b, bes eða há?
Ég gef frat í allt há-bull. Það að menn hafi tekið bje úr bilaðri prentvél og lesið úr því há er dæmi um vinnubrögð sannfæringarfasista.
(Sum sagt, bje er þarna tónninn á milli a-ís/bes og c.)
PissuStopp: Vonandi klikkaði ég ekki í tónfræðinni.
Tigin kona telst hún víst.
Táknið systir fram nú brýst.
Kvenkyns fylgju fæ hér lýst.
Fimmund, stækkuð: bje af hlýst.
Dís?
Auðvitað! grípur um enni sér í örvæntingu yfir að hafa verið aðeins of seinn
Mætti ég vekja ahygli á þessum þræði sem ég stofnaði til að fjalla um vísnagátur. Mér þótti rétt að skilja þá umræðu frá sjálfum gátuþræðinum.
Virkilega gott og upplýsandi - þú átt heiður skilinn fyrir þetta (og það í næturvinnu!)
þetta prenta ég út og hef á náttborðinu mínu.
Hann er niðji Nafla-Jóns.
Nýtur lukku víst með sann.
Vinsæl ræman var til góns.
Viðurnefni á tignarmann.
Mér dettur keisari í hug.
Ekki er það keisari.
Pamfíl skýtur æ ofan í æ í huga mér, en er líklega rangt. Bezt að henda því út í gagnavarpið til að losna við það, þá greiðist máske leiðin fyrir ið rétta svar.
(Sum sagt, bje er þarna tónninn á milli a-ís/bes og c.)
Þ.e.a.s. H.
Starir strunsandi út af sviðinu út í loftið þegjandi um á gólfinu
Eigi er það pamfíll og eigi fíll yfirleitt.
Ekki gerir Hlégestur glens og spyr aftur um forseta?
Hann er niðji Nafla-Jóns.
Nýtur lukku víst með sann.
Vinsæl ræman var til góns.
Viðurnefni á tignarmann.
Þetta er e-r bíómynd - mér dettur í hug Lukku Láki
Svarið er þá Láki - get samt ekki alveg komið með skýringar strax
Svarið við gátunni er ekki forseti og ekki Láki.