Stýri?
Já hvernig væri það Billi minn....
Enda sá á svörtum ketti. (... köttur úti í mýri, setti upp á sér stýri...)
Sá á höfði stúlkukindar. (Hár tekið í tagl.)
Vélin sem að voðir flétti. (Hér brestur mig þekkingu.)
Velur leiðir götumyndar. (Útbúnaður á farartæki til að stjórna stefnu þess.)
Svona hugsaði ég þetta, var þó ekki með orðabók svo þetta gæti verið rangt hjá mér... semsagt Stýri
Enda sá á svörtum ketti. - skott á ketti
Sá á höfði stúlkukindar. - fléttur
Vélin sem að voðir flétti. - spunavél
Velur leiðir götumyndar. - í bíl
Snarlega flest snýst um hann.
Snotur prýði dala.
Hann er mikið haft með sann.
Hann er fasteignasala.
Ás
Ás? Þar vorum við Útvarpsstjóri aldeilis samtaka, þannig að þetta hlýtur að vera rétt.
Ás!
(Ég setti þetta inn eftir að ég sá tvítekninguna; fannst fyndið að bæta um betur)
Ég ætlaði einmitt að vera sniðugur eins og Álfelgur. Starir þegjandi út í loftið
Snarlega flest snýst um hann. =Þegar menn hæla mönnun snýst hólið oftast um þann sem verið er að hæla.
Snotur prýði dala. =Hólar setja oftast fallegan svip á dali.
Hann er mikið haft með sann. =Hólið er yfirleitt byggt á sannleikanum.
Hann er fasteignasala. =Það heitir engin fasteignasala hér á austurlandi ás, svo ég verð því að vera á öndverðu meiði við alla aðra hér og segja að þetta sé hóll.
Já, ég er ekki fjarri því að þetta sé ás!
Orðið haft í þriðju línu er að sjálfsögðu nafnorð - og þýðir ás.
Annars er lausn Offara líka skemmtileg.
Þessi er ennþá auðveldari - en við hæfi.
Rytjuleg er rýjan sú
Rokk í dans mig togi.
Stóðhesturinn stælti nú.
Strætó í Kópavogi.
Þú ert nú aldeilis snjallur kallur!
Annars var Offari búin að ráða hana fyrirfram - sjá hér að ofan. Maðurinn hefur greinilega komið höndum yfir tímavél. Ef ég ætti tímavél myndi ég frekar nota hana til að svindla í Kauphöllinni en í Vísnagátunum. Misjafn er mannanna smekkur.
Jæja, en þessa getið þið aldregi!
Þetta kallast þunnur hundur.
Þessi í Breiðholt fer með hraði.
Vélsmiðjan er vestfirkst undur
vont er þetta súkkulaði.