Ég fer aldrei með bull eða þvætting.
Hér er ein létt með hefðbundnum hætti. Sama orð í hverri línu með mismunandi merkingu.
Fyrir því ei fótur er
flaggað því ég aldrei hef.
Að rugl og óstjórn ríki hér.
Reyndar mikið hól því gef.
Vit?
Nei ekki er það vit enda hef ég hingað til ekki átt í vandræðum með að flagga því, mín kæra Regína.
Þetta er hvk. nafnorð og í hverri línu er það tekið úr mismunandi orðatiltækjum.
Nei enda er orðið hvk og til að auðvelda ykkur þetta enn betur þá eru 4 stafir í því.
Meðvitundar- eða sinnuleysi?
Er þetta ekki bara bull? Ef ekki, þá rugl.
Hér er ein létt með hefðbundnum hætti. Sama orð í hverri línu með mismunandi merkingu.
Fyrir því ei fótur er
flaggað því ég aldrei hef.
Að rugl og óstjórn ríki hér.
Reyndar mikið hól því gef.
gras - bara til að segja e-ð -
annars verðum við að fá e-a bitastæða vísbendingu um þessa léttu gátu.
Ég segi hrós, en ég er ekki alveg með það á hreinu hvernig ég á að koma því inn í allar línurnar í kvæðinu....
Ekkert af þessu er rétt en hér er smá vísbending.
Þið lifið ekki lengi án þess.
Hehe, ríki?
hmmmmm. þetta skyldi þó ekki vera KLOF?
þótt síðasta vísbending sé reyndar ekki að vísa manni rakleiðis þangað.
Fyrir því ei fótur er >>>>> eðlilega, fæturnir koma sinn til hvorrar hliðar við KLOF!
flaggað því ég aldrei hef. >>>>> enda væri það ósiðlegt athæfi að flagga KLOFi
Að rugl og óstjórn ríki hér. >>>>> KLOFningur sjórnmálaflokka/stjórna!
Reyndar mikið hól því gef. >>>>> ástæðulaust að fara nánar út í það!
Fyrir því ei fótur er - úr lausu lofti gripið
flaggað því ég aldrei hef. - ekki hár í loftinu
Að rugl og óstjórn ríki hér. - allt uppíloft í borginni
Reyndar mikið hól því gef. - hefja e-ð á loft (hrósa)
Loft?
Að sjálfsögðu .er það loft, meistari Grislingur.
Í annari línu hafði ég reyndar hugsað mér orðatiltækið að halda e.h. á lofti.
Birt með þeim fyrirvara að ég hafi ekki skilið merkingu orðsins fullkomlega, en ég hef ekki aðgang að orðabók hér...
Enda sá á svörtum ketti.
Sá á höfði stúlkukindar.
Vélin sem að voðir flétti.
Velur leiðir götumyndar.