Ullargoði var það, sei sei mikil ósköp.
Ævi minni er hér lýst:
óljós þokuminning.
Líf mitt hefur verið, víst,
viðstöðulaus brynning.
Skabbi eða eitthvað af hans egóum.
Z.?
Hver orti?
Eitt sinn varstu í gamni nefndur góði hirðirinn
græðarinn og líknarinn og mesti frelsarinn
æ hentu Lord minn eldingum í alla kollana
sem ætla að fella niður góðu verndartollana.
Þetta eru góðar ágiskanir, en rétt svar er ekki komið.
Er þetta alvöru gáta með alvöru svar eins og Bubbi eða Megas? Ef svo vil ég giska á Ólaf Hauk.
Þetta er alvöru gáta, með alvöru svar. Þitt svar er hins vegar ekki alvöru svar, hér er enginn Ólafur Haukur.