A-Ha!
Taktu á mér
Gat ekki verið réttara.
Til hamingju. Þú hefur öðlast réttinn til að kasta fram næsta bút.
Ég þakka. Næsti texti er svohljóðandi:
Ég er ástfanginn af heiminum í gegnum augu stúlku
sem er enn á staðnum daginn eftir.
Við hættum saman fyrir mánuði og ég þroskaðist; ég vissi ekki
að ég yrði enn á staðnum daginn eftir.
Þetta mun vera hinn eiturhressi Elljótur Smiðs með lagið Seg Já?
Það er sannarlega rétt.
Noh, þá má ég setja texta. Frábært, hann er svohljóðandi:
Það er vegur sérhvern dag
að vandamálunum sem maður
getur bara ekki snúið frá
því að í lífinu reynir fólk
að ganga brottu og segja gott og vel
en ég hef séð hryllings skjá
og hann hleðst upp eins og skrímslisvél.
Það dugir skammt að nota slík gullkorn. Man það næst. Þetta er rétt, og þér eigið leik undir súð.
Ég tel næsta víst að lagið heiti Love is in the air. ég man ekki flytjandann.
Humm, ég ætla að gerast svo djarfur að skjóta á Ástin liggur í loftinu. Hef ekki hugmynd um hvur orti, en Tommi Jóns hefur átt það til að söngla þetta.
Úbbs, of seinn.
Ást í loftinnu og verð að viður kenna að ég hef ekki hugmynd eftir hver... elsta dæmið sem ég fann á netinu var Martyn Robbins frá 1970.Og ég líka of seinn.
ég var að gefa syni mínum allt mitt vínilplötusafn svo ég á enga texta til að þíða svo ég gef næsta manni réttinn.
hrifsar til sín réttinn Hananú, hér kemur ein lauflétt.
Við komum frá landi klaka og snjós
frá miðnætursól hvar hverir spúa.
Hamar guðanna
mun reka skip vor til nýrra landa
að lumbra á lýðnum, syngjandi og gólandi
Valhöll, ég mun koma.
Áfarm æðum með áratökum,
okkar eina markmið; vesturstrandir.
Getur verð að þessi hljómsveit sé kend við þýskt loftfar frá fyrri heimstyrjöldinni?
Ég man ekki nafnið og ætla því að leyfa öðrum að koma með það enda tapaði ég öllu vínilplötusafninu í fatapóker.
Lagið er Innflytjendalagið.