— GESTAPÓ —
Fræðsluefni í hegðun og framkomu
» Gestapó   » Dægurmál, lágmenning og listir
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Rauðbjörn 9/9/06 21:23

Hæ.
Eftirfarandi fræðsluefni tók ég saman til þess að undirbúa ykkur kæru notendur fyrir yfirvofandi móralskri hnignun auk réttra viðbragða við nokkrum nútímavám.

Hvernig fylgja skal dömu á mannamót og/eða stefnumót
http://video.google.com/videoplay?docid=-2897726297420164602&q=dating+do%27s+and
Í þessu mynbandi er farið yfir framkomu sem til er ætlast af ungum piltum þegar samskipti við hitt kynið eru annars vegar, allt frá fyrstu kynnum til kveðju.

Kynlíf
http://video.google.com/videoplay?docid=3006154363534273085&q=sex+madness
Í þessu mynbandi er varað við þeirri hættu sem stafar af kynlífi utan hjónabands sem og kynvillu ýmiskonar.

Kjarnorkuváin
http://video.google.com/videoplay?docid=8928011184027286128&q=duck+and+cover
Þegar kjarnorkuvopn eru annarsvegar þá er eins gott að hafa hárrétt viðbrögð á hreinu.

Hampur
http://video.google.com/videoplay?docid=-117344919147932597&q=hemp+for+victory
Þegar skortur er á þessari yndislegu plöntu getur myndast neyðarástand víða í heiminum. Gerum okkar besta til þess að sjá til þess að hann komi aldrei til með að vanta hérna á frónni.

‹Glottir eins og fífl›

Með fyrirvara um innsláttar-, málfars-, stafsetningar- og kynvillur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 11/9/06 12:16

Hér hefur þú, Rauðbjörn, fundið handa okkur vandað og áhugavert fræðsluefni um hætturnar sem fylgja flóknu nútímasamfélagi. Á tímum sem okkar er hægur leikur að láta glepjast, og villast þá af hini réttu braut hins siðvanda þjóðfélagsþegns.

Til umræðunnar vil ég leggja fram eftirfarandi myndskeið, sem uppfræðir unga pilta um meinlegt mein sem því miður er allt of oft sópað undir teppið, en það er kynvilla.

Myndbútur þessi var framleiddur í Kaliforníuríki Ameríku af þarlendum lögregluyfirvöldum, en ég er þess fullviss, að efni hans á einnig fullt erindi við íslenzka æsku.

Hérna má nálgast myndina. Það er von mín, að sem flestir piltar horfi á hana og ígrundi efni hennar vandlega.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Úlfamaðurinn 11/9/06 17:21

Gerum samfélagið einfaldara! AUUUUUUUUUu

» Gestapó   » Dægurmál, lágmenning og listir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: