Billi er biluð plata
með bæheimskum skátasöng.
Aldrei nær Billi bata
því bilanagreining er röng.
Víst ert þú hið versta fól
sem veröld ól.
Á þér hanga hrímguð tól
heims um pól.
Máttlaus eins og messuvín
eða músarfretur,
Hlebbi kvelur saklaus svín,
serðir fyrst og étur.
Slepjulegt og slímugt dýr
slapp af norðurpólnum,
veifar á torgi hreðjum hýr,
heldur á sparikjólnum.
Þú ert eins og gamla Grensásdeild:
grænn af myglusveppi, já og lekur.
Í þér myndar heimsins ógeð heild
sem hrylling öllu góðu fólki vekur.
Ef froskurinn heimskauta flytti í búr
og fengi á neti að glenna sig klúr
myndu örgustu klámhundar alnetsins vikna
og óþverrinn „Two girls and one cup“ blikna.
lesist með fingruðum áherslum (- ^ ^)
Hugvit að láni hann hlebbI fær
—og hvernig fer vegferð sú?
Skuldirnar uppí ekki krónu nær
hans andlega þrotabú.
Húmbaba er hræ af manni,
í Húsdýragarði í banni.
Menn segja, og það með sanni,
að saurlífi tæplega anni.
Heims með skauta fýsnum fláum
froskur allra bjána val
hraunar grimmt úr gumpi þráum
gríðarlega abnormal.
Þó að bændur burtu stuggi,
bófinn leggst á ær og kýr,
sípropandi öfuguggi
upp úr skolti vallgang spýr.
Inn á Pó ég skýst og skoða
(skín á tinda morgunsól)
lít ég þennan Hlégestshroða
hann er landsins mesta fól.
Beint í steininn stinga mætti
stólpafífli þessu inn
Í leiðinni svo einmitt ætti
einhver að gleypa lykilinn
Ill eru þjáðrar þjóðar mein
(um þau er mikil fræðigrein)
en pína sú er almest ein
að umbera þurfa Gretzky, Wayne.
Froskurinn er furðu dýr
drullu fenja kóni.
Hann er sagður rævill rýr
ræsis árans dóni.
Stekkur átjánfalda hæð sína af einskærri gleði yfir að fá yfir sig níð frá lappa eftir laaaaangt hlé
Heima skauta froski fráum
furðulegt er þetta dýr.
Drulast umm á gryðung gráum
gagnlaus eins og ygsna,kýr.
Lappi er kynlegur kvistur,
með kynusla greindist fyrstur.
Hann er lægri en laufatvistur
og langar í Karmelsystur.
Froskinn þarf að tukta til
og taka á beinið.
Þettað árans flóa fyl
færi best í skeinið:
Ég er mestur, ég er bestur,
ég er sómi.
lappi er geldur pokaprestur
með putta í gómi.
Víst er Billi algjör illi
enda silly talinn.
Upp úr dilli og dassi af chili
drengir, grillum halinn.