Með illsku í sinni og ör í haus
engum manni kær.
Böl er að gangi Billi laus
bilaður og ær.
Er hægt að vera vitlaus eins og þú,
og voðalegur skíthæll inn við beinið?
Þótt Hlebbi líkist Indlands elstu kú
innrætið er verra, það er meinið.
Froskurinn náði í flensu og grút
sem fylltu hann þrautum og pínum.
Hann snýtti sér hraustlega og hreinsaði út
helftina af mannkostum sínum.
Daginn sem Billi bilaði
í barnæsku, honum skilaði
fjölskyldan fljótt
(það fannst engum ljótt)
og koníakskaffi sér ylaði.
Gangirðu í gjólunum,
gættu þín á drjólunum,
fautunum og fólunum,
froskinum á pólunum.
Síst er Hlebbi vísu verður,
viðbjóðs dausinn.
Því hann er ósköp illa gerður,
einkum hausinn.
Þú ert ljóti skoffíns skussinn
skögultennti þurs:
Baular einsog kálfa kursinn
kjaftfor sonur burs:
Lappi er maður ljótur.
Lappi er rót hvers vanda.
Lappi er leiður þrjótur.
Lappi er frá Skeljagranda.
Glymur hátt í tómri tunnu
tæpt er hlebba geð.
Sagður er frá koti kunnu
kjaftfor,og annað með.
Líkur afvelta rollu með rotnandi hold
og reyfið allt kvikt af maðki
er Lappi, sem helst ætti að liggja í mold,
undir látlausri umferð og traðki.
Froggi kvakk með tófu titt
tæpur og illþefjandi.
Farðu í þinn forar pitt,
froskurinn óalandi.
Lappi djöfull, gagn þú eitt sinn gerðir þó
ef þú gengir út í sjó.
[b
Þú ert ljótur falskur fjandi,
fyllist kjaftur þinn af sandi.
Líka ertu skíta skarn
skrattakokllur,besta barn:
[/b]
Gjarna við ég gefa Lappa
af gumsi feiknadýru:
Arsenikki er í ég stappa
eiturblárri sýru.
Þú ert sagður punglaus pjakkur
puðrandi með rostungskjaft.
Lítilsgyldur skömndull skakkur,
skauvalaus með engan kraft.
Heyrðu, litli Lappi minn,
lúðinn einskisvirði:
heldurðu ekki að andskotinn
á endanum þig hirði?
Þú ert hlebbi skíta hjass
hottintotti þrjótur
Farðu svo í rotinn rass,
rosa ertu ljótur.
Ógeð hefur þjóð á því
og þykknar mjög í sinni
þegar Lappi lufsast í
lágkveðustuðluninni.