Hausverkur
Hálsbólga eða nefkvef með hori?
Hálsbólga.
Ísland eða Danmörk?
Ísland
Hafragrautur eða grjónagrautur?
Grjónagrautur
Með rúsínum eða án rúsína?
Með rúsínum og jafnvel sveskjum líka.
Hrísmjölsgrautur eða sakurgrjónagrautur?
Sakurgrjónagrautur
Heilastappa eða lungnamauk?
Lungnamauk, helzt að skozkum hætti. Sleikir út um.
Fugl eður fiskur?
Fugl. Helst af tegundinni KFC
Graflax eða reyktur lax
Graflax, sé hann ekki grafinn upp.
Mandarínur eða smákökur?
Mandarínur.
Jól eða festivus?
Jól.
Jólatónleika Baggalúts á Rás 2 fyrir hlé eða jólatónleika Baggalúts á Rás 2 eftir hlé?
Jólatónleika Baggalúts á Rás 2 eftir hlé.
Grýla eða Leppalúði?
Gamli góði Leppalúði.
Flís eður ull?
Oregano
Byggbjór eða hveitibjór?
Sex raða.
Stóll með örmum eða án arma?