Sprungið hefur sprundið út og spaugar mikið.
Skyldi ráða kasti kylfa
að kelar Leoncie við Gylfa?
Gylfi börnum góð er vörn með geirinn hvíta.
Hala-stjörnu er ljúft að líta;
laus er görn við sódómíta.
Sódómídar sitja hér með Sömum hýrum,
hlæja yfir hjartasárum,
hlæja krókódílatárum.
Krókódílatárum trauðla tæki lengi
að úthella ef ekki fengi
inngöngu í þetta gengi.
Gengi dagsins getur rokkað giska mikið.
Enginn veit hver um þar ræður,
eflaust seðlabankahræður.
Hræðilega, hræðilega, hræðilega
finnst mér að mér flestir vega
fyrir að yrkja hræðilega.
Hræðilega, herfilega, hrikalega,
gengur mér að ganga stiga.
Gengur þó að mála á striga.
Strigakjaftur, stólpatrantur, Steinn Sigvaldi;
flestum þótti mesta mildi
að maður þessi týnast skyldi.
Skyldi ég fá skjal um það að skuldin greidda
fari út af innheimtunni.
Ætli tölvan vel það kunni?
Kunningi minn, kontóristinn, kímdi og hló.
Af kerskni var þó komið nóg
er kompjúterinn sagði: NO!
Kunningi minn, kontóristinn, kímdi og hló, já.
Af kerskni var þó komið nóg þá
er kompjúterinn sagði: NO! Á!
Nóg á ég af næprum, rófum, nektarínum,
ananösum, appelsínum,
apríkósum, mandarínum.
Mandarínum mikið er í mun að sanna
yfirburði eigin manna
umfram þá er spilling' kanna.
Kannananna kannar Nanna kannan anna.
Nanna annað kann að kanna;
kann að sanna annað, Nanna.
"Nanna" sagt var nokkuð oft er nær var lokið
lagi sem ey lýð fékk svikið.
Létt má dusta af því rykið.
Rykið þyrlast þræði af ef þetta kvæði
birtist hér á heiðurssvæði,
hreykin í það stuðlum læði.
Læði ég mér létt í sturtu og loks í skýlu
og út í laug í engri fýlu;
ætl'ég nái að synda mílu?
Milos Dracan Djungavič frá Dubroviče
Gú-e-vara vitnar í Che
Vilmund Gylfa og Friedrich Nietzsche.
Nietzsche reit víst nokkur orð um náðgan herra
og sagði að víst það væri firra
að vellyktandi þætti myrra.