Já
Á næsta braghenda þá að byrja á orðinu Viðartrefjavefjarefnisvafningsþráðarveiðisnöruvillibráðarvöðvaskurðarlærlingssnáðar?
Það passar e.t.v. ekki nógu vel í bragarháttinn þar sem það er 16 atkvæðum of langt fyrir fyrstu línu (tölfræðilega marktækt). Einnig gæti reynst erfitt að finna við það rímorð.
Snáðinn ungi ekkert veit og ekkert skilur.
Svartur, djúpur heimsku-hylur
á herðum situr. Tómur bylur.
Slaka hífa sleppa taka slíta vefja
Lofa rægja ljúka hefja
lækna veikja flýta tefja.
ÆÆ vitlaus síða.
Góðandaginn - ertu ekki á rangri síðu, Offari minn . . . Stórfín braghenda hjá þér, samtsemáður.
Snáðinn ungi ekkert veit og ekkert skilur.
Svartur, djúpur heimsku-hylur
á herðum situr. Tómur bylur.
Bylur hæst í tómum tunnum, tjörubornum;
því þar er af skammti skornum
skilningur á lífsins hornum.
Hornbaðkar og klósettsskálarker í rými
Gólf á fínar flísar lími
fæ mér sturtu ef ég tími.
Vonandi hitti ég á rétta síðu.Glottir eins og fífl
Tími minnar ævi óðar burtu æðir.
Örlaganna þrinnast þræðir
þögul framtíð Vatne hræðir.
[tók varla eftir þessu, en þriðji stuðull fyrstu braglínu verður að vera í fimmta braglið... Skabbi]
Hræðir gjarnan hjartans sálir, hriplekt farið,
ljótt og beyglað líkamskarið,
lemstrað mjög og illa barið.
Barðar lamdar bundar þreyttar beljur þessar
ekki með það eru hressar
enda vart það drottinn blessar.
Stöku menn þeir stökur yrkja stöku sinnum
Vísnaþorsta vorum brynnum
vonandi hér svölun finnum.
Finnum virðist finnast gott að finna hita,
kófdrukknir í sánu sitja
sinna feðra uns þeir vitja.
Vitja mín oft votir draumar vin minn hífa
vekur hjá mér vininn stífa
verst að hann ei fær að dífa
Klám!
Dívan á ég ekki góðan, er það miður.
Gólfið er ei góður staður
getnað stunda vilji maður.
Maður sem að man þá tíð með mjólk í brúsum,
saknar varla sæg af lúsum,
og sæng fulla af plágumúsum.
Músaveiðar millifóta mikið stunda
Oft við holu hólkinn munda
hristi vel og skýt svo lunda.
Boðið hef ég býsna oft í bólið kalda
Bjartri mey sem býður þokka,
Bara að ég ætti smokka…
[Billi: Mér varð það á að bulla hérna áðan. Afsakið. Hlebbi.]
Boðið hef ég býsna oft í bólið kalda
Bjartri mey sem býður þokka,
Bara að ég ætti smokka…
[Billi: Í braghendum dugar hálfrím milli fyrstu línu og hinna tveggja (sbr. beðið:soðið ; vita:leita). Annars mjög fínt. Hlebbi.]
Mjög gott hvort heldur er. Hér er greinilega frárímuð braghenda á ferðinni.
Sbr. fimmtu rímu Hlíðar-Jóns rímna Steins Steinarrs þar sem m.a. stendur:
Á að halda áfram lengur óðar stagli?
Húmið lækkar himinn blánar,
held ég senn á vegu Ránar.
Þú ert í góðum félagskap með þessu braghenduafbrigði, Billi bilaði.
Smokkum ekki smekklega hann smokrar lengur.
Þegar gerist gamall drengur
gleymist hvernig brúkast þvengur.