Krumpa fær rafmæliskveðjur frá mér
Í dag fær krumpa, einhver skarpasti penni heimsveldisins, innilegar rafmæliskveðjur.
Krumpa fær ekki aðeins rafmæliskveðju, hún fær innilega rafmæliskveðju.
núna árin alveg þrjú
áttu hér að baki
ennþá ég þitt andans hjú
yfir Krumpu vaki.Ljómar upp og hneigir sig í duftið.
krumpa fær innilegar rafmæliskveðjur og ekkert múður.
Missti hún ekki af síðasta rafmæli í einhverjum önnum? Vonandi nær hún þessu.
Krumpu kveðjur.
Líklega gleymdi ég að óska Jóakim til hamingju um daginn. Hann fær auðvitað hlýlegar kveðjur frá mér.
(Annars vona ég að fólk taki því ekki illa ef ég gleymi að óska því til hamingju - ég er einstaklega gleyminn og ókurteis.)
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þarfagreinir minn kæri heiðurs-eðalpói og gruppeknuser..Nú og svo hennar hátign keisaraynjan okkar hún Krumpa fá Riddara-rafmæliskveðjur
Krumpa fær alveg geggjaðar stuðkveðjur með þessu lagi: http://www.jonathancoulton.com/mp3/A%20Talk%20with%20George.mp3
Hjartans þakkir öll - og sérstaklega fyrir ljóðið og lagið...
Missti einmitt af síðast rafmæli og hef ekki litið glaðan dag síðan. Verð því heima í dag og tek á móti blómum, áfengi og peningum. Er m.a.s. með matarboð í kvöld í tilefni dagsins...
Til hamingju Krumpa með rafmælið
Færir Krumpu sléttujárn
Krumpa fær innilegar hamingjuóskir á rafmælisdaginn.
Krumpa Gleðigjafinn sem altaf hefur hjartað í fjórða gír .Ávalt reiðubúinn treystandi klettur . Í dag er þinn dagur
njóttu hans sanfærð um að á morgunn bíður verödinn þér góðann daginn og vekur þig með daggvætukossi nefbroddskíttlandi sólargeyslum , vínarbrauði lífsins
Innilega til hamingju með rafmælið krumpa. Ljómar upp
Sparkar í keisarann svo hann ranki við sér
Krumpa fær stuðkveðjur í dag!
Ó hvað þið eruð öll yndisleg.
Kíkið endilega við í höllinni og fáið ykkur í tána!
Brestur í óstöðvandi gleðigrát
Já, tek hér með undir stuðkveðjur til hæstvirtrar Krumpu. Gefur Krumpu kóbaltbætt krumpusprey