Ha ha! Bendir á Þarfa og híar
Maður stendir í felum inni í baðherbergisskáp og fylgist með ungri konu. Hún sönglar á meðan hún afklæðist til að baðast. Þegar hún er komin úr fötunum brosir maðurinn með sjáfum sér og lokar skápnum.
Eða átti ég kannske að bíða eftir staðfestingu?
Nei nei. (Ég þurfti að stoppa myndina á meðan ég jafnaði mig á hláturskasti þegar ég horfði á hana fyrst.)
Jæja. Enginn?
Neibb.
Jamm
Víííí! Ein af mínum uppáhalds myndum.
Eeeen ég gef réttinn frá mér þar sem mér dettur ekkert í hug.
Kastar réttinum afturábak eins og brúðarvendi
Jæja þá ...
Fjölskylda er stödd á sjúkrahúsi. Pabbi pabbans er nýdáinn og þau eru að líta til hans. Pabbinn fær allt í einu þá hugmynd að smygla líkinu út úr sjúkrahúsinu. Þetta tekst þeim með því að lauma því út um gluggann.
Jamm. Fínasta mynd, ekki satt?
Jú, prýðileg. (Var þýdd sem Smásól í Regnboganum - mér finnst það falleg þýðing)
Bráðskemmtileg mynd. Ég þarf að leggjast undir feld og íhuga næsta atriði. Það ætti að koma á morgun.
Næsta atriði.
Maður kemur ríðandi að nautgripahjörð með mönnum sínum. Hann fer einn af baki og þrammar ákveðinn í gegnum hjörðina. Á móti honum er óþokki að hlaða skammbyssuna sína. Maður við hlið hans upplýsir óþokkann að hann eigi að vita að sá ákveðni muni ekki nota vopn. Óþokkinn segist vita það en hefur engan hug á að gera hið sama. Ákveðni maðurinn þrammar fram hjá óþokkanum. Óþokkinn kallar á hann. Ákveðni maðurinn snýr sér leiftursnöggt við, skýtur niður óþokkann sem á móti nær að skjóta hann í síðuna. Sá ákveðni þrammar viðstöðulaust áfram enda hafði hann engan áhuga á óþokkanum.
Hann kemur upp að manni sem stendur kyrr, þrjóskur á svip. Ákveðni maðurinn segir honum að draga upp byssuna. Hann gerir það ekki. Ákveðni maðurinn eggjar hann áfram um að ráðast á hann. Hann skýtur í kringum hann, skýtur af honum kúrekahattinn, skrámar kinnina með byssuskoti en allt fyrir ekkert. Ávkeðni maðurinn gengur upp að honum þegar hann hefur tæmt byssuna. Kastar henni og dregur upp byssu þrjóska mannsins. Kastar henni burt og fer að slá þrjóska manninn. Sá þrjóski þrjóskast við og gerir ekkert. Þegar hann slær þrjóska manninn niður bregst hann loks við og úr verða mikil slagsmál milli þeirra sem lýkur ekki fyrr en kona nær athygli þeirra með því að skjóta á þá með skammbyssu. Hún fer að húðskamma þá fyrir slagsmálin.
Þetta er með Clintaranum...Fistful of dollars?