Þetta er kvikmyndaatriðagetraunaleikur eins og Kvikmyndaatriðaleikur Illa apans, eða hvað hann hét. Það þekkja allir reglurnar. Titillinn á að halda Hakuchi úti, en andúð hans á dönsku er vel þekkt.
Tveir tónlistarmenn hittast á kaffihúsi og hefja innihaldslaust hjal. Annar tafðist þar sem hann hafði verið að sinna læknaskyldum sínum í fjögurra bíla árekstri stuttu áður. Munið þið enn eða hvað?
Man ekki neitt
jeg kan ikke huske noget!
Þetta hringir engum bjöllum hér.
Lítur í kring um sig
Limbri....Hentirðu bjöllunum !?!
Kaffi og sígó
Kaffi og sígó
Ég var einmitt að spá í hvort þetta væri úr þessari....en ég bara mundi ekki eftir neinu um árekstur.
Kaffi og sígó
Rétt. Þetta er sagan um þá Iggy (Pop) og Tom (Waits).
Skldegodt Egon, skidegodt.
Spurt er um kvikmynd. Í kvikmyndinni má sjá eftirfarandi atriði:
Maður er á hótelherbergi með konu. Hún bregður sér á baðherbergið. Á meðan bankar einhver upp á og maðurinn svarar. Þar eru komnir tveir menn sem segjast vera að færa honum kampavín. Hann segist ekki hafa pantað neitt slíkt. Um leið og hann hefur sleppt orðinu grípa mennirnir hann og nema hann á brott.
Arrrg! Ég held ég eigi að vita þetta... en, nei, tannhjólin eru of ryðguð.
Þetta var gamanmynd ef ég man rétt. Er þetta gamanmynd?
Ekki beinlínis gamanmynd nei. Hún myndi frekar flokkast sem bófamynd.
Skrambinn. Blótar herfilega og rífur hár sitt Minnti að svona atriði væri í einni af kjánalegu myndunum með Chevy Chase.
Var þetta annars nokkuð í myndinni Maverick með Mel Gibson?
Það gæti vel verið að þig misminni ekki, en slíka mynd hafði ég alla veganna ekki í huga.
Né heldur er þetta Máva-Rikki. Myndin er yngri.
Hm... hef ekki glóru um aldur umræddra bíómynda, en dettur í hug Pulp Fiction. Með þeim fyrirvara þó að það eru um það bil 11 ár síðan ég sá hana síðast. Sem reyndar gefur mér aftur smá glóru um aldur þeirrar myndar... allavega... Pulp Fiction?
Pulp Fiction er held ég 12 ára gömul, en þessi mynd er enn yngri en það.
Nei - orðin eru 2.
Breyting ríkisstjórnarinnar