Í sama þætti og þessar samræður áttu sér stað ákvað Hómer að gerast uppfinningamaður eins og Thomas A. Edison. Þessar minningar tengjast þó uppfinningamennskunni ekki neitt.
Er enginn með þetta?
Ég sem hélt að þetta væri svo auðvelt...
Starir þegjandi út í loftið
Að standa í röð í bíó, að láta búa til lykil og þetta samtal.
Hverjir eru eigendur hestsins Krudler?
Krusty og Bette Midler, til að vera aðeins nákvæmari.
Teikittavei, Anna!
Æ tökum bara aðra auðvelda úr sama þætti; hvað hét þátturinn sem bolaði Krusty úr sjónvarpi og hvað hétu stjórnendur hans (sumsé bæði dúkkan og maðurinn)?
Gabbo hét brúðan, stjórnandinn hét Arthur Randall og þátturinn hét...Gabbo? The Gabbo Show?
Eitt af atriðunum sem Tina telur upp er ekki nákvæmlega hárrétt. Má bjóða einhverjum að fullkomna svarið?!
Bara til að besserwissast, ekki til að fá réttinn, hét ekki búktalarinn Arthur Crandall ?
Jú jú, það vantaði ekki nema eitt C uppá! Afhendir Ríkisarfanum Besserwisseraorðu baggalútíska heimsveldisins Þið megið slást um réttinn mín vegna.
Jæja alltílagi þá, Bart reyndi eitt sinn að ná sambandi við Hómer með því að senda honum hugskeyti, en það misfórst eitthvað, hver fékk hugboðin og hver voru skilaboðin ?
Milhouse Van Houten fékk skilaboðin, sem voru: "Trab pu kcip!"
Hér kemur ein sem ætti að reynast auðveld.
Dag einn hvarf nemandi í grunnskóla Lindavallar sporlaust. Flissar eins og smástelpa yfir eigin þýðingu
Daginn eftir var haldin hátíð í skólanum. Spurt er; hvað hét hátíðin (hér er ekki síst spurt um rithátt) og hvað hét aðalrétturinn sem á boðstólum var?