Óður skundar hræðir hrund,
háska grundar daman
Móður hundur spottar sprund,
spjátrungs stundar gaman.
Kunna báðum vélráð vill
vanda þjáðum hrottum,
Sunna bráðum ætlar ill,
örlög tjáðum skottum.
Húmbaba mjög flottur fær,
flynkur bandaglaður.
Gapa vil ég alveg ær
enda fjandagraður.
Fjandagraður enda ær
alveg vil ég gapa.
Bandaglaður flynkur fær,
flottur mjög Húmbaba.
Graður karlinn veltist við,
víkur sér að henni.
Hraður sæðir kvinnu kvið,
kvalinn ástar brenni.
Brenni ástar kvalinn kvið,
kvinnu sæðir hraður.
Henni að sér víkur við,
veltist karlinn graður.
Brennivínið finnst mér fínnt
flaskan ekki búin,
Svínið er nú tapað týnt
tölvert nú ég lúinn.
Lúinn nú ég tölvert týnt
tapað er nú svínið,
Búin ekki flakan fínt
finnst mér brennivínið.
Þjáður lengi bíður blítt,
blómum fjölgar óðum.
Þráður góður liðast lítt,
leynir skáldum góðum.
Góðum skáldum leynir lítt,
liðast góður þráður.
Óðum fjölgar blómum blítt,
bíður lengi þjáður.
Ekki alveg nógu gott, viðsnúið... en látum það flakka.
Í tilefni af 1. maí.
Auðmaðurinn:
Duga tekjur, aldrei einn
arkar lífsins brautir.
Huga gleður, sjaldan sveinn
svæsnar hefur þrautir.
Öreiginn:
Þrautir hefur svæsnar sveinn
sjaldan gleður huga.
Brautir lífsins arkar einn
aldrei tekjur duga.
Magnað, vel ort Billi. Ljómar upp
Ljómar upp og roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Þetta er glæsilegt! Ég vildi ég gæti gert svona.
Óviðjafnanlegt.
Betri sléttubönd hafa tæplega birst hérumslóðir.
Tek undir jákvæð orð í þinn garð Billi. Snillingur ertu. xT
Víst er þetta snilld en ég vil benda hógværa heiðursmanninum Z. Natan á eina sem var svipuð að gæðum. Því miður er hún ein af því sem ekki er að finna hér lengur en það væri möguleiki að hann gæti rifjað hana upp þar sem það var snillingurin Z. sem orti hana. . Hún skipti líka um meiningu þegar henni var snúið við.
Flott hjá Billa, þetta gæti ég ekki gert.
Vímus, getur þú nú fundið þetta eftir Z. Natan fyrst gamlir þræðir hafa birtst?
Hróður eflir magran mann
miðlungs ljóðið skjallar.
Góður smiður verkið vann
varla finnast gallar.
Gallar finnast, varla vann
verkið smiður góður.
Skjallar ljóðið miðlungsmann,
magran eflir hróður.
Mér þykir ansi líklegt að Vímus eigi við þetta:
Mikið drekk ég; aldrei er
edrú milli funda.
Strikið yfir fullur fer.
Fráleitt reglu stunda.
--------------------------
Stunda reglu; fráleitt fer
fullur yfir strikið.
Funda milli edrú er.
Aldrei ég drekk mikið.
En þetta er að finna á þræðinum "Besta sléttubandið": http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=4455
Annars var ég fyrst núna að sjá sléttuband Billa - glæsilegt.
Takk fyrir það. Þetta er unun að lesa. Gefur frá sér vellíðunarstunu