Það er skiljanlegt að skarpir menn
skipuleggi glæpi.
Og þó fjandsamlega' að fjáðum enn
fjölmiðlarnir æpi.
Upplitsdjarfur alþýðupiltur
ætlar sér að taka slaginn.
Upplitsdjarfur alþíðupiltur
ætlar sér að taka slaginn.
Algjör bjálvi spói spiltur
springur eflaust,góðan daginn:
-------------------------------------------
Þannig fór með karlinn ká
kominn enn með skitu.
Þannig fór með karlinn ká
kominn enn með skitu.
Slapp hann odda ati frá.
Engin vopn hann bitu.
Heima mitt er út um allt
alls staðar og hvergi.
Heima mitt er út um allt
allsstaðar og kvergi.
Svo er líka karli kalt,
og konulaus með ergi:
--------------------------------
Viltu ekki manni malt
matarkex og ruðu.
Viltu ekki manni malt
matarkex og ruðu.
Nei, því te og Thule kalt
Tortólar mér buðu.
Davíð Odds og Ólaf Ragnar
elskar þjóðin
[i]
Davíð Odds og Ólaf Ragnar
elskar þjóðin.
Elli hrumur þursin þagnar
þyngjast lóðin.
-----------------------------------
Dabbi kóngur fer á flakk
fretandi til Bessastaða.
Dabbi kóngur fer á flakk
fretandi til Bessastaða.
Hans fyrri störf og frægð tel akk
og firri Íslendinga skaða.
Davíð, Hannesar Hafsteins jafni,
heiðarlegur og fróður.
Davíð, Hannesar Hafsteins jafni,
heiðarlegur og fróður.
Í hógværð sinni held ég kafni,
hann er vígamóður.
Í öllum heimi er ávallt best
íslenska svínaríið
Í öllum heimi er ávalt best
Íslenska svínaríið.
En veðjirðu á haltan hest
hrynur batteríið.
-------------------------------------
Blessuð sólin vermir vel
vorsins fuglar kvaka.
Blessuð sólin vermir vel
vorsins fuglar kvaka.
Úti því ég oftast dvel.
Útivist ég holla tel.
Frambjóðendur einn og átta;
alsnotran ég Davíð vel.
Frambjóðendur einn og átta
allsnotran ég Davíð vel
Gamalnenni utan gátta
0g galtóman ég tel
----------------------------------------
Hugur leitar á heimaslóð
og hreina loftsins tæra.
Hugur leitar á heimaslóð
og hreina loftsins tæra.
Æ er Tortólu tíðin góð.
Togar eyjan kæra.
Fór á ról við rokkinn sit
raula gamla vísu.
Fór á ról við rokkinn sit
raula gamla vísu
um peninganna perluglit
sem púkkar undir krísu.
Er það sem mér sýnist að
sæmdin hafi vikið?
Er það sem mér sýnist að
sæmdin hafi vikið?
Dæmist þjóð á dökkkan stað,
ef Davíð hefir svikið!
Eins og frjálsir fuglar
flugum við.
Eins og frjálsir fuglar
flugum við.
En Rúna gamla ruglar
og reyndar þið:
------------------------------
Blessuð litlu börnin
bjástra og leika sér.
Blessuð litlu börnin
bjástra og leika sér
Yfir svífur örnin
og athugar þau ger.
Góð var mér sú gósentíð
er glöggur Davíð réði.
Góð var mér sú gósentíð
er glöggur Davíð réði.
Það var árans hagla hríð
haustið er það skeði:
-----------------------------
Fyrri part með hálfum hug
hendi ég á blaðið.
Fyrri part með hálfum hug
hendi ég á blaðið.
Að botna er létt, þarf lítinn dug,
fyrst Lappi reið á vaðið.
Heill forseta vorum, fósturjörð
og fótboltalandsliði!