Dögurð skal ég draga fram
ef dettur þú hér inn.
Passlegt þá að panta gram
ef pípuna ég finn.
Dagur rauða nefsins nú
nauðug börn í hættu.
Dagur rauða nefsins nú
nauðug börn í hættu.
Allt sitt gefa ættu hjú,
einkum fötin bættu.
Grín nú skaltu gera að
góðborgurum fínum.
Grín nú skaltu gera að
góðborgurum fínum.
Flestar dömur dýrka það
að dáðst að mínum línum.
Yfir vofir eiturský
sem astmasjúkir hata.
Yfir vofir eiturský
sem astmasjúkir hata.
Samt fara út í hopp og hí
og hósta á gamla krata.
Viltu ekki vera þar
sem vellur hraun í gjótu?
Viltu ekki vera þar
sem vellur hraun í gjótu?
Einungis ef er til far
á ökutæki fljótu
Þingmenn okkar eru hér
endalaust að bulla,
Þingmenn okkar eru hér
endalaust að bulla.
Þeir ættu fremur að fleyja sér,
á færeysku, og drulla.
Er ég kem á mannamót
margir flýja.
Er ég kem á mannamót
margir flýja
Mæli ég með betrumbót
bakrás nýja,
Ilmur fylgir aftansöng
sem ekki mönnum líkar..
Ilmur fylgir aftansöng
sem ekki mönnum líkar..
Oft er ræðan einnig ströng.
Ekki vil ég slíkar.
Þótti ´ann heldur þvaðurgjarn.
Það er ég víst líka.
Þóttii 'ann heldur þvaðurgjarn
það er ég víst líka:
Strokkur nemdur besta barn,
barri með lundu slíka.
--------------------------------------
Ber mig hugur langa leið,
ljúfa á mér drauma:
Ber mig hugur langa leið,
ljúfa á mér drauma:
Ég sem hérna beið og beið
með bakið mitt hér auma.
Mjólkurverðið verður lágt
er verðbólguni líkur
Mjólkurverðið verður lágt
er verðbólguni líkur.
Drauminn þennan bar að brátt,
betri er enginn slíkur.
Siðblindan nú sýnist mér
sigra allt hið góða.
Siðblindan nú sýnist mér
sigra allt hið góða.
Reynist það allt rétt hjá þér
fá ríkir meiri gróða.
Hefur þjóðin lítið lært?
Er logið markaðsverðið?
Hefur þjóðin lítið lært?
Er logið markaðsverðið?
Lambánum nú frá skal fært
og færa undir sverðið.
Dregur stjórnin dul á það
sem dagsljós ekki þolir.
Dregur stjórnin dul á það
sem dagsljós ekki þolir.
í sögu vorri er brostið blað
blað sem enginn þolir.
--------------------------------------
Þettað er talið vita á vont,
voði er hér á ferðum.
Þettað er talið vita á vont,
voði er hér á ferðum.
Þú ert hér með mikið mont
og mest af öllum gerðum.
Rignir hér í austanátt
en eiturloftið hverfur
Rignir hér í austanátt
en eiturloftið hverfur.
Út að leika einn þá mátt,
að þér varla sverfur.
Bárðar- ef að -bunga nú
brýtur af sér höftin
Bárðar ef að bunga nú
brýtur af sér höftin.
Ég hef á því tæpa trú,
traust eru Ómars sköftin.
------------------------------------
Gos í holu hrauninu
heldur áfram lengi:
Gos í holu hrauninu
heldur áfram lengi.
Það kemur gas úr kauninu,
kvartað um að mengi.
Að sniffa gas úr gosinu
er geðveikt mikið stuð