Ef að bykkju'í arf þú færð
eta skalltu gripinn.
þó visin sé og varla nærð
og væskilsleg á svipinn.
Nú er lag að segja satt
sannann botn mun þyggja.
Nú er lag að segja satt
sannann botn mun þyggja.
Í Ákavítisámu datt
og er nú það að tyggja.
Allt er frá mér frekar rétt
frá því vil ég segja:
Allt er frá mér frekar rétt
frá því vil ég segja:
ef aðeins segði sanna frétt
ég sífest mundi þegja.
orða gæti alltaf ég
aldrei fleipur mæli.
orða gæti alltaf ég
aldrei fleipur mæli.
vísnaorðin vísdómsleg
vandlega við gæli
Opna bjór og bleyti glas
bergi á og ljóma
Opna bjór og bleyti glas
bergi á og ljóma
koms í partý mæltir mas
Megasi bauðst rjóma
svona gott er minnið mitt
mér er ei létt að gleyma.
svona gott er minnið mitt
mér er ei létt að gleyma.
fékk þar ei að far'í splitt
frekar það að geyma
Rjóminn fór í russian
rosalega hvítann
Rjóminn fór í russian
rosalega hvítann
Nokkuð betra ei neitt ég man
nú fer ég á æðra plan.
Wiskíglas um kyrrlátt kvöld
kemur skikki á sálarlíf
Wiskíglas um kyrrlátt kvöld
kemur skykki á sálarlíf.
Laus við þras og þrátt um völd,
með þessum drykk í ró ég svíf.
Hádegi er hér í bæ,
held ég nú á markað.
Hádegi er hér í bæ,
held ég nú á markað.
Sæll og glaður syng og hlæ
-senn ég hitti Starkað.
Veðrið úti er svo gott
að ég fer að gráta
Veðrið úti er svo gott
að ég fer að gráta
Út á snúru snara þvott
Snýst um mig ein hnáta.
Upp úr snjó eitt stendur strá
stilkurinn er brotinn
Upp úr snjó eitt stendur strá
stilkurinn er brotinn
Vorið ekki vill á stjá
vonin niðurlotin.
.
Lifnar vorið ljóst og grænt
líkt og reistur pöllur
Lifnar vorið ljóst og grænt
líkt og reistur pöllur.
Einhver fékk það að sér hænt;
ætl'ún noti bjöllur?
Tasmaníudjöfsi deyr
úr dularfullum sjúkdómi.
Tasmaníudjöfsi deyr
úr dularfullum sjúkdómi.
Hér úr botni lekur leir
lítt með fögrum búkhljómi.
----------------------------
Niðrummig ég er með allt,
enginn fær því bjargað
Snjórinn fellur, svartahríð
sindrar mjöllin víða
Napur gengur nú kuldatíð
nepja um landið fríða.
Niðrummig ég er með allt,
enginn fær því bjargað
í lífinu er lánið valt
loks er á mig gargað.
nú er Garún nokkuð villt
nú er spilltur þráður
Niðrummig ég er með allt,
enginn fær því bjargað,
láni mínu, er var oft valt,
vínið hefur fargað.
nú er Garún nokkuð villt
nú er spilltur þráður.
Von er að mér við það bilt
verði, reglu háður.
Helst ég láta laga þarf
lífsins áttavita
Helst ég láta laga þarf
lífsins áttavita
Tölvert líkist þarfatarf
tel þig sáttan vita.
Löngum hefur lífsins gleði
lokkað bros á þína brá.
[obbobbbobb... hér er villa í botni.... of langt á milli stuðla... Skabbi]
Helst ég láta laga þarf
lífsins áttavita.
Á hann sá ég auman skarf
iðrabrúnt á drita.
Kompás lífsins vísar víst
í vestur.