llt ég meina ekkert þér
elsku karlinn besti:
trampi á þér tröllaher
á trítilóðum hesti.
Ég á Sony segulband
silfurgrátt með Dolby
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ég á Sony segulband
silfurgrátt með Dolby;
hundraðsinnum betra brand
en B&O í Molby.
----------------------------
Gæinn tjúnar græjurnar,
gerist mjöðm & svalur *
* ´ hip & cool ´
Gæinn tjúnar græjurnar,
gerist mjöðm & svalur
Gleðjast pleibojpæjurnar
pund er hærr' en dalur.
Bragarlistin brást mér nú
bulla ég og skemmi.
Bragarlistin brást mér nú
bulla ég og skemmi.
Eittsinn með mér áttir þú
unaðsstund á Hlemmi.
----------------------------
Lífsins æðsta ævintýr
& ærlegasta sæla
Lífsins æðsta ævintýr
& ærlegasta sæla
er að halda ær og kýr
og egg og beikon spæla.
Komdu nú í koddaslag,
kappinn, ef þú þorir.
Komdu nú í koddaslag,
kappinn, ef þú þorir.
Klæðumst svo í kerludrag
og knúsumst fram á næsta dag!
Transsexjúal tilraunir
tæpast verða liðnar
Transsexjúal tilraunir
tæpast verða liðnar
þínar eru þjóhlaunir
þokkalega riðnar.
Inga Dóra á lítið lamb
á löngum teini
Inga Dóra á lítið lamb
á löngum teini.
Nagar Ingu eilíft dramb
innað beini.
----------------------------
Heyrist me í minni sál,
mjögsvo kindarlega
Heyrist „me“ í minni sál,
mjögsvo kindarlega.
Þannig jarma um þjóðarmál
þýtt og myndarlega.
Jóhannes úr Kötlum kvað
svo kraumaði í flestum.
Jóhannes úr kötlum kvað
svo kraumaði í flestum.
Marga setti bögu á blað,
bærilegur,gestum.
Margar góðar barna bögur
bísna ljúfar gerði hann.
Margar góðar barnabögur
býsna ljúfar gerði hann.
Grýlu- og jólasveinasögur
sérhvern enn þá gleðja kann.
Sovét-Ísland einnig gerði
yrkisefni hann að sínu.
Sovét Ísland einnig gerði
yrkisefni hann að sínu´.
Þó hann eldri börnin berði
brá karl sér á aðra línu.
Í tjöu kagga Krisján vildi
kræfur Jói setja fljótt.
Natan . Minn góður
Smá Prentvilla hja mér ´í fyrriparti,
Kristjá, Á að vera Kristján. Byð afsökunar.-- Lappi
Venjufremur torræður fyrripartur hjá lappa að þessu sinni . . . orðskýringar væru velþegnar
Í tjöu kagga Kristjá vildi
kræfur Jói setja fljótt.
Mér finnst gott að anda ildi
að mér, sérhvern dag nótt.
----------------------------
Vísnagerð er sparisport
spjátrunga & hrappa
Vísnagerð er sparisport
spjátrunga og hrappa.
Oftast duga krítarkort
körlum eins og Lappa.
Litlir góðir dáðar drengir
dæmalausir negrar.
Litlir góðir dáðar drengir
dæmalausir negrar.
enginn Lappa ljóta hengir
lútin aðeins fegrar.
Sjáið oní svarta holu
er syndir mínar geymir.
Sjáið oní svarta holu
er syndir mínar geymir.
Þaðan leggur ljúfa golu,
- löstinn margan dreymir.
Kynvillið er kvillið ljótt,
kvæðinn sjáðu skakka.
Kynvillið er kvillið ljótt,
kvæðin sjáðu skakka..
Flestir hafa hrossasótt
högnarnir frá Bakka.
Nú er úti bjart og blítt
bráðnar snjærinn hvíti.
Nú er úti bjart og blítt
bráðnar snjærinn hvíti.
Næsta vorið verður hlýtt
vetrinum ég burtu snýti.
------
Veðrið getur valdið kvefi
vondur hósti oft fylgir.