Tíminn flýgur komið kvöld
kært í ból mér halla.
Vökum lengur verum köld
víst má sitthvað bralla.
Enginn tekur eftir mér
er ég laumupúkast.
Enginn tekur eftir mér
er ég laumupúkast.
ég á eftir öllum fer
önnur hendin brúkast.
Lofið mér að lifa enn
látið engan dæma
Enginn tekur eftir mér
er ég laumupúkast.
Augna minna glámur gler,
glæður eldsins brúkast.
Boli kaldi með kulda hret
kveina menn og norpa,
Lofið mér að lifa enn
látið engan dæma.
Svona góða magna menn
mætar vísur sæma.
Læt fyrripart hér fyrir ofan gylda.
Góða nótt í Guðs friði.
boli kaldi með kulda og hret
kveina menn og norpa
ettu bara uldið ket
sem ilmar likt og sorpa
indislegan il það gefur
iljar þer sem solarströnd
sumar kveðja[/code]
Indislegan il það gefur
iljar þar sem sólarströnd..
Núna þegar haustað hefur
hræðist mikið ókunn lönd.
Vetrar kvíði kætir ei
köld er snjáfar drýfa,
Vetrar kvíði kætir ei
köld er snjáfar drýfa,
upp skaltu þá á kvöl klýfa
káta Lappagrei
Komdu með mér kisa mín
Krísuvíkurleiðina
Komdu með mér kisa mín
Krísuvíkurleiðina
ég drakk bæði bjór og vín
og barðist yfir heiðina
söngur gleði sviti tár
situr eftir helgi.
Söngur gleði sviti tár
situr eftir helgi.
Nú ertu dapur,fölur fár
frekar sljór, og velgir.
Fer í háttinn huldumær
höllum okkur líka.
Fer í háttinn huldumær
höllum okkur líka.
lappi karl er elliær
enda gömul píka.
svona ekki sofa meir
sjáðu það er dagur.
Svona ekki sofa meir,
sjáðu það er dagur.
Ef allir væru eins og Geir
Ólafs; heimur fagur!
Held ég verði að tileinka Hvæsa þennan botn. Starir þegjandi út í loftið
Vöknum snemma! Vöknum hress!
Vöknum glöð í bragði!
Vöknum snemma! Vöknum hress!
Vöknum glöð í bragði!
Við svefninn núna sagði bless
og svo til vinnu lagði.
Þreyta færist fljótt á mig
þá flý ég upp í rúmið.
Þreita færist fljótt á mig
þá flý ég upp í rúmið´
loka augum þaufar þig,
þögnin, svefn og húmið.
Lauf af trjánum fölnað fellur
færist vetur kóngur nær,
Vetrar kviði kætir ei
köld er snjafar dryfa.
Heima kurðu káta grei
þu kannt ei fjöllin klyfa.
Það virðist kulda hrollur a ferð
er er heitur fyrripartur
sólin yfir Esju skin
sælu okkur veitir
sofið rótt
Lauf af trjánum fölnað fellur
færist vetur kóngur nær.
Gjarnan hef ég mök við mellur
minnsta kosti einar tvær.
Ofsakátur, ánægður,
ævareiður, hugsi.
Sólin yfir Esju skín
sælu okkur veitir.
Þú er mikið blessað brín,
Bör þú eflaust heitir'?
Dymmt er yfir fagra fjalli
fögur Esjan hulin sýn.
O
Ofsakátur ánægður
Ævareiður, hugsi
Álappi álslægður
ákaflegur uxi.
Fyrir gefðu ljúflingur.
Læt ofanritaðan fyrri part standa.
Dimmt er yfir fagra fjalli
fögur Esjan hulin sýn.
Lappa tel ég sitja´ð svalli
sem er ekki nokkuð grín.
Magnaður er maður sá
mildur alla daga.
Magnaður er maður sá
mildur alla daga.
Öllu slíku er fallinn frá
fær ,en þarf víst aga.
Daga alla dunda hér
dæmalaust er gaman,
Ofsakátur, ánægður,
ævareiður, hugsi.
Álappi álslægður
ákaflegur uxi.
Þetta gengur ekki, lappi sæll.
Ofsakátur, ánægður,
ævareiður, hugsi.
Greiddur, strokinn, gljáfægður,
gerðarlegur uxi.
- - -
Daga alla dunda hér
dæmalaust er gaman.
Bragur rekur burt frá mér
bölvanlegan amann.
----------------------------
Réttar stuðlareglurnar
respekterum, vinir