— GESTAPÓ —
Móðir Theresa
» Gestapó   » Fyrirspurnir
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Pípan 21/10/03 13:08

Á Móðir Theresa eitthvað skylt við drullusokk?

Á ég að skrifa eitthvað hérna eða hvað?
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Myglar 21/10/03 14:59

Ég segi það nú með þér!

Þessir þrífarar eru skammarlegir. Þetta mál verður tekið fyrir á fundi, ég skal lofa þér því.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
spesi 21/10/03 15:06

Bölvað væl er þetta, Myglar. Þú lepur helgislepjuna úr slefandi gamalmenninu í Vatikaninu eins og prestfrú til sveita. Skoðaðu aðeins <a href=http://www.baggalutur.is/rit.php?t=skrif&teg=1&id=360>síður hugguleg afrek</a> konunnar áður en þú missir þvag.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 21/10/03 16:52

Drullusokk? Vissulega - af náungakærleik hreinsaði hún til á stöðum þar sem aðrir þóttust of fínir til að drepa niður fæti. Sama á við um Eminem - hann tekur á kýlum þjóðfélagsins af festu.

Þeir sem halda að drullusokkur sé hér settur fram sem eitthvað neikvætt eru bara eitthvað vangefnir.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Myglar 21/10/03 17:10

Þetta er allt saman páfanum að kenna, Spesi, ekki móður Teresu! Það er hann sem er drullusokkurinn. Móðir Teresa reyndi, eftir því sem ég best veit, að gera eins gott úr þessari vitleysis-kaþólsku og hún gat.

Og þú getur bara sjálfur verið drullusokkur, Enter, fyrst þeir eru í svona miklu uppáhaldi hjá þér.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
spesi 21/10/03 17:26

Jájá, dragðu bara í land núna, Enter litli. Eymingi með hor.

Annars getur vel verið að páfinn beri mesta ábyrgð í málinu, Myglar. En það er óþarfi að mála þessa góðlegu, þjófóttu, strangtrúuðu, ofstækisfullu, líknsömu, eiginhagsmunasömu og látnu konu einhverjum litum sem ekki passa henni. Lítum frekar á hana eins og hún var og segjum sannleikann.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Myglar 21/10/03 17:34

Og finnst þér sem sagt nákvæmasta leiðin til að lýsa "góðlegri, þjófóttri, strangtrúaðri, ofstækisfullri, líknsamri, eiginhagsmunasamri og látinni konu" vera sú að líkja henni við drullusokk?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
spesi 21/10/03 17:36

Þar sem hún hafði bæði afar góðar og afar slæmar hliðar finnst mér eðlilegt að líkja henni við eitthvað sem er bæði gott og slæmt á sinn hátt.
Hvort tveggja Eminem og drullusokkur uppfylla þau skilyrði.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Myglar 21/10/03 17:38

Jájá, dragðu bara í land núna, Spesi litli. Eymingi með hor.

Þú veist alveg jafn vel og ég að það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar það sér drullusokk er, jú, drullusokkur.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
spesi 21/10/03 17:43

Alveg eins og þegar fólki dettur Eminem fyrst í hug þegar það sér Eminem.
Mér dettur hins vegar alltaf í hug rugludallur þegar ég sé þig...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 21/10/03 19:22

Ég er andskotann ekkert að draga í land bavíaninn þinn!

Ég vildi bara benda þvermóðskupúkum eins og honum Myglari (og þér vitanlega, skíthaus) á að oft býr meira að baki orðum en hin augljósasta merking þeirra.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
spesi 22/10/03 10:41

"Þeir sem halda að drullusokkur sé hér settur fram sem eitthvað neikvætt eru bara eitthvað vangefnir."

Reyndu þetta bara.

» Gestapó   » Fyrirspurnir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: