Hverskonar iðnðarmaður birtist loksins, eftir langa bið, undir lok bókarinnar "Vandræði Vaílu Veinólínó"?
Þrepari Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Eða, réttara sagt, Múrari, að laga þriðja þrepið neðanfrá á Myllusetri.
Díses, Kræst! Þetta er rétt hjá aðalib illaB og mig minnir að einmitt að Múrarinn hafi heitið Rögnvaldur og uppfrá því hefur manni alltaf fundist allir múrarar heita Rögnvaldur, svona rétt eins og sú staðreynd að allir alvöru skrifstofumenn heita Snorri eitthvað...
Þá er að reyna að koma með eina eftir minni.
Í Svarta Gullinu (ef mig misminnir ekki) fara tvíburarnir under cover og fá sér vinnu.
Hvar fengu þeir vinnuna og hvernig misstu þeir hana?
Fengu sér vinnu hjá Simba Súmm. og misstu hana þegar þeir sprengdu dekkundir forstjórabílnum.
Múrarameistarinn hét reyndar Magnsteinn ef ég man rétt.Ljómar upp
O, jú jú.
En af hverju fengu þeir sér vinnu hjá Simba Súmm?
og nú vil ég fá almennilegt svar!
þetta er svar en kannski ekki það sem að ég kalla almennilegt.
Það er eitthvað með það að Simbi Súmm rímar við Búmm?
Þetta er í áttina.
Bensínstöðvar voru að springa og þeir heyrðu í útvarpi, eða sáu í blöðum, að Simbi Súmm var að auglýsa sitt Búmm, og héldu að hann væri að útrýma samkeppninni?
Bílar sögðu búmm og Simbi Súmm hvtti menn til að hringja í sig ef bílar segðu búmm.
Skafptarnir löggú saman 2 og 2 og fengu út 7.
Ég ætla að gefa Skrekknum rétt fyrir þetta.
Ég var með þetta.
::
Á undan.
Þitt svar var ónámkvæmt.
Það er samt ekkert að því að koma með spurningu. Starir þegjandi út í loftið
Hvað heitir tryggingasölumaðurinn alræmdi, og formaður hvers konar klúbbs er hann í lok Kolafarmsins?
Flosi Fífldal var formaður góðakstursklúbbs.
Ég er að fara í sumarfrí og reikna með að verða lítið hér inni næstu daga þannig að hver sem spyr á réttinn.
Þessum þræði ætti að loka.
Hér er líklegast rétti vettvangurinn til að benda á að Tinnaleikur verður haldinn í raunheimum á Rósenberg miðvikudaginn 12. maí næstkomandi, frá 17:00 til 18:30. Þeir sem skráðir eru á Fésbókina geta lesið um þetta hér.