Er Uppi hættur á Gestapó? Brestur í óstöðvandi grát Vill þá einhver stela réttinum?
Stökkbreyttur ofurillur frímerkjasafnari?
Glámur.Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Þetta var greinilega nógu einföld spurning til að vekja leikinn.
Spurðu Upprifinn.
Hver er Zorrínó?
Er það nokkuð einn af sígaununum sem tjalda hjá Myllusetri í Vandræðum Vaílu?
Nei.
Einn af pikkarónunum.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Getur það verið aðstoðarmaður hnífakastarans (hershöfðingjans)?
Nei nei.
Vjer munum þetta afar ógreinilega en getur verið að hann hafi verið e.k. leiðsögumaður Tinna og Kolbeins í bókinni Fangarnir í Sólhofinu ? Vjer erum a.m.k. nær vissir um að hann kom við sögu í þeirri bók.
Vjer munum þetta afar ógreinilega en getur verið að hann hafi verið e.k. leiðsögumaður Tinna og Kolbeins í bókinni Fangarnir í Sólhofinu ? Vjer erum a.m.k. nær vissir um að hann kom við sögu í þeirri bók.
Nógu rétt fyrir mig.
Forseti vor á spurnarrétt í þessum leik.
Hvað var það er Skaptarnir veltu fyrir sjer hvort ætti eitthvað skylt við píanó og hvernig fengu þeir sýnishorn af því ?
Ég hugsa að ég geymi það að svara þessari spurningu og sjái til hvort einhverjir fleiri vilji ekki vera með í leiknum.
Var það ekki Gúanó sem hugsanlega átti eitthvað skylt við píanó, en þeir komust að annari niðurstöðu þegar Mávur skeit á hausinn á Skapta, í fjörunni við Callao í Perú Eða var það kannski Skafti?
Þetta er nógu rjett og gefum vjer Tinna því spurnarrjettinn. Annar Skaptanna velti fyrir sjer hvort gúanó ætti eitthvað skylt við píanó. Þá skeit mávur á hattinn hans og hinn Skaptinn benti honum á að þar hefði hann fengið ágætis gúanósýnishorn.