Þar sem ég er hreinræktaður Framsóknarmaður í marga ættliði finnst mér vanta svona þráð hér
Hjá Framsókn er nú framtíð björt
fylgi að sér hleður
Fylgið hjá þeim eykst nú ört
alla hér það gleður.
Þar sem ég er hreinræktaður Framsóknarmaður í marga ættliði
Er ekki rétta hugtakið "einræktaður"?
Framsóknarmaddaman feita
-fretandi, ropandi skass-
lífsspeki enn er að leita
-lítur í eigin rass
Þar er að finna 'etta fína
framsóknarsjálfstæðishrat
sem Davíð með djöflana sína
dömpaði meðan hann gat
Vissi ég nú vel þetta
vinsæll þráður yrði
Fundið hef nú flokkinn rétta
Framsókn vinur allra stétta.
Um formanninn níðvísu nuddaði saman
en nafnið var strikað út
ég hengdi upp kópíur - kæti og gaman!
Svo keypti ég eldgamlan hrút.
Ég nefndi hann Halldór, þá helvísku rollu
og hentonum beint inná þing
hann jarmaði lengi um líkþráa kollu
og löggerning.
Svo kom þangað belja með brúna lokka
-þau bauluðu tvö í kór
um kanaverndina, kommaflokka
og karla sem moka flór.
Beljan varð pirruð og pakkaði saman,
potaði í hrútinn og fór
og einsemdin líkast til gerði hann graman
-hann grenntist og drýgði hór.
Og vinirnir hurfu og Halldór varð leiður
og hætti að spá í stjórn
uns loksins að kommarnir komu með greiður
og kembdu' ann og snyrtu
og klæddu í skyrtu
og kölluðu mannlega fórn.
Hér eru nokkrar misgóðar Framsóknarvísur fluttar frá Skabbalút. Ég skora á pabba að koma líka hingað með sín fögru FRAMSÓKNARLJÓÐ.
Gleðifregnir gott að heyra
glatt er nú hjá mínum flokk
Framsókn brátt nú fer að keyra
fer um allt með nýjan kokk
Eyðist Framsókn ekki brátt
eigi mun hún deyja,
eykst nú fylgið smátt og smátt
smár er nú en fer brátt hátt
Finnur er nú farinn út
frjáls er Guðni kátur,
Flokkurinn nú fer í hnút
Framsókn er nú slátur.
Vilja menn núna formanninn Finn
Framsókn vill nú kom'onum inn
Finn ég í fjöru
ferlega tjöru
Ég vill engan Finn í flokkinn minn.
Blaðra menn um bélistann
í borginni og víðar,
Líklega mun líkkistan
lokast innan tíðar.
Atkvæðin lentu afvega
útkoman mældist ferlega,
Fallið í Framsókn
fer nú í rannsókn
fjarlægt skal manninn brostrega.
Merkilegur maður er
magnaður er gaurinn
Guðni eflir ex bé her
eflaust líka þetta sker.
Valgerðina vill ég hér líka
vill hún gera þjóð okkar ríka,
Íslandsvinir æla
auðvaldssynir hæla,
Þjóðin má þakka fyrir vakyrju slíka.
Ég greip eina af vefbók einni í morgun, sem ég þurfti reyndar að laga aðeins:
Gerður vildi ekki Grími mæta,
geislum Kastljóssins böðuð í.
Ekkert heldur þýdd'að þræta,
þegar hún tók sér dömufrí.
Hananú og hoppoghí
Heyrið mig nú flón
korriró og kirrikí
kusuð ykkur Jón...
Meðan út við ysta haf
iðar lækjarspræna
hrynur fylgið Framsókn af,
flokknum myglugræna.
Forngripur á Fróni er
Frammsókn mun hann kallast
Formaður svo fúll nú sér
Fylgið burtu sallast
heimsku ykkar hampið þið
haldið framsókn besta
illgjarnt víst er allt það lið
og ætti í járn að festa.
sex ég veit sem kannski kjósa
kléna flokkinn grænan:
Enter, Guðni, Ingólfs Rósa,
ærin, svín og hænan
megi hamla góður guð
græna flokksins blóma
gef að þagni þeirra suð
þjóðinni til sóma
Guðni hefur gjarnan sést
á gamansömum mótum
en stefna þeirra stundum lést
standa á eigin fótum
Til forna var hér flokkur sá,
er framsókn vildi kallast,
niður skrönglast, skelfur þá
í skoðanakönnunum hann rosalega geðveikislega niður nú sallast.
Aftur rís upp flokkur fær
fegrar landið okkar
Framsókn aftur fylgi nær
framtíðin þá björt og skær.
Barist er í braghendum
bæði með og móti.
Lösturum og lofendum;
Lát af þessu róti.
Framsókn er í fallhættu
flokknum líður illa.
Þingmönnunum þrásætu
þykir fylgið villa.
Þrástaglandi þingmannsprik
þramma um og tuða.
Gera ætti stórt, svart strik
og stuða þessa kauða.
Nú finnum við hjá Framsókn mikið hik,
þó flestir telji að sókn sé vörnin besta.
Því flokk sem hyllist fláræði og svik,
og fer í stríð – á kross upp ætti að festa.