Grefur inn í skáp eftir Kraftgallanum
Allar ásláttarfvillur skrifastr á vettlinganma.
Hvernig er það, ég var búinn að láta þig hafa varaknastásfjölbreyti til ísetningar fyrir all löngu síðan. Hvers vegna varstu ekki búinn að því?
Af því það sem þú hafðir sagt að væri varaknastásfjölbreytir reyndist vera gömul makkintosh dolla. Þú hefur ekkert vit á þessu.
Lemur knastásinn til hlýðni
Hann hefur þá ekki hlýtt? Ég þurfti að skafa í morgun.
Það er af því fjölbreytiknastásinn hafði spænt upp kælihverfilinn á einum af mótskeytisventli hitajöfnunarhraðalsins. Það tefur nokkuð fyrir viðgerðum.
Það er haglél!
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Mér er alveg sama þó það snjói frá 22. til 26. svo lengi sem það er desember en EKKI MAÍ!!!!
Besta veðurvélin er kassi af bjór. Allt verður betra með kassa af bjór. Líka veðrið.
HAKUCHI!
Hvæsir á Hakuchi
Viltu laga þetta strax!
Eins og stendur er ágætt veður, lognið á milli storma! Það var hræðilegt veður síðustu nótt, ég vaknaði kl. fjegur í morgun og gat ekkert sofið eftir það. Í nótt skilst mér að það eigi að vera jafnvel enn verra. Ég heyrði talað um algjöra sprengju. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann

Já ljósin voru byrjuð að flökta hérna í gærkvöldi.
Ljóta leiðinlega slagviðrisrigningin er reyndar hætt og myndarleg snjókoma komin í staðin.
Sem mér finnst vera skref í rétta átt.
En Hakuchi má samt róa sig á storminum.

Allur bærinn er búinn að ganga fyrir varaaflstöðvunum í dag, það leggur svartan díselreyk yfir höfnina! Verði aftur svona óveður í nótt er ekki víst að það verði rafmagn hér yfir höfuð. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þá er um að gera að vera búinn að byrja sig vel upp af áfengi! Ranka svo bara við sér í vor einhverntíman.
Geturu ekki bara sett strákinn í svona hamstrahjól tengt rafölum?
Betra væri að notast við eitthvað með fjórar lappir... t.d. tígrisdýr! Ljómar upp
Betra væri að notast við eitthvað með fjórar lappir... t.d. tígrisdýr! Ljómar upp
Ég veit ekki hvort það eru einhver tígrisdýr þarna fyrir vestan.
Betra væri að notast við eitthvað með fjórar lappir... t.d. tígrisdýr! Ljómar upp
Ég veit ekki hvort það eru einhver tígrisdýr þarna fyrir vestan.
Þegar ég hugsa um það hef ég í raun aldrei séð tígrisdýr nema hérna á Gestapó, meira að segja þrjú.
Þá ert þú klárlega ekki að fara á réttu barina.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
HAKUCHI!
Hvæsir á Hakuchi
Viltu laga þetta strax!
Hvaða hvaða, ég er bara að prófa þanþol nýju vindtúrbínunnar.
Einn umgang í viðbót. Haldið ykkur börnin góð.
Trekkir upp vindglæðingsgangvirkið, stillir inntak túrbínunnar á 4500 kvartsíbel
Þú ert flottur veðurvélstjóri. Ég hef ekki þurft að fara með ruslið í tunnuna í heila viku. Bara sippa draslinu út fyrir dyr og svo hverfur það yfir þar þarnæsta garð. Bara að muna að hafa engin gluggabréf í pokunum, þá uppgötva nágrannarnir hvaða draslið kemur og allt verður vitlaust.