Kranavatnið karlinn þáði,
kannski útí setti lögg.
Allaveg'ann upp sér náði
án þess að smakka jólaglögg.
Jólaglöggið verst er vondra drykkja,
verður mörgum góðum dreng að falli
og líkt og hrun í hagkerfinu Grikkja
honum veltir niður af sínum stalli.
Stalli hef ég staðið á
og strangan hafið lestur
á pínslum þeim sem þú munt fá
ef þig ey blessar prestur.
Prestuinn gamli hlær við hátt
og hendist burt úr stólnum.
Út á gólf og missir mátt,
og mænir á ljós í hólnum.
Í hólnum þarna held ég sé
huldufólk að líta.
Og álfur kom sko út og mé,
annar þurfti að skíta.
Skítur í lundi skeinir á grein
skrækur aftansöngur,
er rekur upp sitt ramakvein
rassgarnarendi þröngur
(ágirnd vex þá engum nein
aftur að fara í göngur).
Göngur og réttir, gróðabrall,
sem gengur í túristana.
Bóndinn upp setur bífurnar snjall,
og blikkar svo nýja kana.
Kana mellur magnaðar
margan karlinn veiða.
Líka heldur hugaðar
og hrífandi til reiða.
Reiða má og rá hér sjá hvar ruggar bátur,
aldan bláa á hann lítur,
ósköp smá á honum brýtur.
Brýtur alda böls við klett,
brosir sól í heiði.
Áralag tekur Rúnki rétt
og rær þótt kýrin beiði.
Beiðandi í býsna langri runu
biðlar allir sorgum drekkja munu
er Hlebbi gamli giljar hana Unu
og gefur frá sér vellíðunarstunu.
Beiðandi í býsna langri runu
biðlar allir sorgum drekkja munu
er Hlebbi gamli giljar hana Unu
og gefur frá sér vellíðunarstunu.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Stunurnar í strákunum hans hlebbA
stuða flesta sem á þurfa að hlýða.
Troða mætti hann tuskum í þá plebba
er tekur hann þá bæði oft og víða.
Abbsakið, eitthvað smit er hér frá skammarþræðinum.
Víða saman liggur leið,
ljóð er hugan vekur.
Vísan góða, hrein og heið
hug minn allan tekur.
Tekur í runni, tyftar í mó
tindrar í gráum skugga.
Fokk, hvað mann er að fýsa þó
að fróa sér útí glugga.
Glugga ég í gömul blöð
greinar les og skoða.
Blaðflettingin,hroðvirk hröð
heldm mér fari að voða:
Voðalega virðist manni vont að yrkja
takist manni varla að virkja
viljann til að hengja og kyrkja.