Götur þrífa verðum við
víst er búið hretið.
Sandinn burtu sópið þið
sýnið hvað þið getið.
Getið heyrði ég Gunters Zimm
glaðbeitta með parrukkinn.
Hann kendur er við konur fimm
sem kalla hann allar Gutta sinn.
Sinn er hverjum ljóða líkur
lífsglaður er oddvitinn,
gyrnist flestar pilsa píkur,
pyrraður verður hreppsstjórinn.
Hreppstjórinn á Hala
heldur inn til dala,
leggur loks á fjall.
Klífur bratta kletta,
klungur sér hann detta,
hurð á hæla skall.
Skall til jarðar drullu deli
duglaus væskils lufsu róni.
Í vasa leydist príðis peli
píreygður ég á hann góni.
Gónt ég hef um glugga inn,
grátlega sjaldan nokkuð sé.
Nú hefur vænkast hagur minn:
Hundrað þúsund jpg!
Djeipeg nást á djamminu
djöfull sást í líki þorsks
krumpuð fást og kramin sjást
krúnudjásnin lítils frosks
Froskar eru flestir grænir
fallegir á litinn.
Frökkum grjarnan finnst þeir vænir
fínnt þar smakkast bitinn.
Bitinn næsti nægur er
nagla meður súpu.
Í eftirréttin malla mér
möndlugraut og rjúpu .
Rjúpnaveiðin rýr í ár
rauk upp merkaðsverðið
Veiðimaður voða sár
og vantar honum sverðið.
Sverðið Hjörtur af lagni lagði
Lots í hjartastað.
Afmyndaður og þrútinn þagði,
Og þaut í bað.
Baða sig bezt er að gera ber að neðan.
Gott það er með góðum vini,
gerzt þá er af öðru kyni.
Kyninu er kippum í er karllægt grobbið.
En flestu þó við snýtum snobbi
ef snót er nær. Og brjóst. Og klobbi.
Klobbatal og klæmið grobb
karlmenn prýðir varla.
Gabbar margan görótt slabb,
gerla syndir merla.
Merlar æ í mánasilfri minningin,
um hann Thomsen gamla Grím,
gerzt er kunni að stefa rím.
Rím og stuðlareglurnar
reyna oft á hugan.
Naga á mér neglurnar
ef naum mér þykir smugan.
Smuga mörg er smogin.
Smellin saga login.
Fluga sérhver flogin.
Flaska tæmd og sogin.
Sogið hef ég sígarettna fjöld.
Sopið marga fjöruna af stút.
Lífi skal þó halda heila öld
því hjartað slær í takt við Baggalút.