Nú hafa tónskáldin miklu og listaspírurnar í kammersveitinni Supernova staðið í allmiklum mannaráðningum. Umsækjendalistinn var langur en einungis 15 komust í lokaúrtak. Þar á meðal var hinn virti tenórsöngvari Guðmundur Magni Ásgeirsson. Nú væri gaman að vita hvað mönnum finnst um þessa virtúósa og sköpun þeirra sem og álit karla og kvenna á meðumsækjendum íslenska stórtenórsins.
Mjehh.
Þetta er lélegt sýndarmennskurokk. Holara en geimurinn.
Nær væri að fá Captain Beefheart, Tom Waits og Justin Timberlake til að sitja í stað þessara lúsera í Supernova. Það væri band í lagi. Sigurvegarinn myndi ekki syngja en starfa við það að hýða Justin með svipu á öllum tónleikum. Það væru sigurverðlaun í lagi.
Ég held að ég sé bara alltof upptekinn við að skála á hverjum þræði og kætast yfir opnun Baggalúts svo ég get rætt þetta mál.
Jú jú Borgfirðingurinn er svosum í lagi blessaður. Þetta fólk sem er þarna með honum virðist sumt hvert helst til lifað. Mér finnst að Magninn ætti að vinna þetta. Það er alveg kominn tími á vel rokkaða barnaplötu. Kanski má endurgera plötuna með Giljagaur og setja lögin í nýjan búning. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ég hef ekkert nennt að fylgjast með þessu. Vinnufélagar mínir hneykslast á mér og kalla mig föðurlandssvikara og skrítna. Pakk.
ÉG ER TOMMY LEE!
Ég er Megas!
Jæja kallinn... eigum við þá að taka lagið?
Kaupir í plastgerðar og sílíkonfyrirtækjum í von um að einhver vilji breyta sér í Pamelu
Kaupir í vasaklútafyrirtækjum í von um að einhver vilji vera eins og Pamela í Dallas
Magni er magnaður...og sérstaklega í hljóðkefinu.
Snýtir sér í hljóðkerfið
Ég hef verið hýddur of oft fyrir að halda því fram í manna áheyrn að Magni þessi sé lítið annað en ofmetinn kollóttur sveitalubbi sem kann að spila fjóra hljóma á rafmagnsbanjó og ýlfra með. Því ætla ég ekki að endurtaka þau orð hér.