Borða upphitaða pizzu og drekka kók
Reyna að muna / komast að því hvað aðal atvinnuvegur er á engilsaxnesku.
Einhver?
Reyna að muna / komast að því hvað aðal atvinnuvegur er á engilsaxnesku.
Einhver?
Best Jobways...
Alveg satt.Ljómar upp
Fárast yfir því hve nýja SS pylsu auglýsingin er ömurlega ömurleg og hve Þorsteinn Guðmundsson er ömurlega ömurlegur í henni. Það er að vísu ekkert nýtt. Mér hefur aldrei þótt hann fyndinn.
Reyna að muna / komast að því hvað aðal atvinnuvegur er á engilsaxnesku.
Einhver?
Það ku vera "primary profession" eða eitthvað í þá áttina.
Ég er hinsvegar, akkúrat núna, að spá í að laumast í Lindu Suðusúkkulaðið sem liggur í skúffunni inni í eldhúsi og kallar á mig, en þá þarf ég að hafa fyrir því að hella uppá kaffibolla handa mér líka og ég bara nenni því ekki. Að einn súkkulaðimoli skulli krefjast svona mikillar fyrirhafnar!
Ég endaði á að nota main industries.
Annars er ég að horfa á liðið hans Golíats fara hægt af stað.
Þamba kaffi, þvælast um smettisskrudduna, gestpó og Þúrörið og þykjast ekki eiga sorglegt líf...
Ég er að bölva því að 'Hvað er nýtt' virðist vera bilað. Ég get engan veginn hangið hérna án þess! Hvað er Enter?
Melta sunnudaxsteikina. liggur því sem næst afvelta við tölvuna
Ég er að bölva því að 'Hvað er nýtt' virðist vera bilað. Ég get engan veginn hangið hérna án þess! Hvað er Enter?
Í flestum tilfellum er það hnappur á lyklaborði.
Ég er að bölva því að 'Hvað er nýtt' virðist vera bilað. Ég get engan veginn hangið hérna án þess! Hvað er Enter?
Í flestum tilfellum er það hnappur á lyklaborði.
Það er líka besta leiðin til að segja fólki að ganga í bæinn, en verður þá að berast fram með tilgerðarlegum enskum yfirstéttarhreim.
Svo er bara gert miskunnarlaust grín að villunni minni í þokkabót ... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Nú er ég að furða mig á þeirri staðreynd að eftir að ég datt tímabundið út af netinu svínvirkar 'Hvað er nýtt' á nýjan leik. Annað hvort var þetta meiriháttar tilviljun, eða þá að einhver vandræði mín megin voru að valda þessari villu. Hvort tveggja þykir mér þó mjög ótrúlegt.
Nú er ég að liggja uppi í rúmi með báða kettina til fóta. Gerist vart afslappaðra.
Reyndar er annar þeirra kominn á vinstri upphandlegg minn og maga núna. Það er vissulega afslappaðra.
Ég er að rita ? á 4 síður af exelskjali, sem á að tákna desember. Það sem er verst af öllu að ég er gjörsamlega úrvinda af þessari ritsmíð.