En...hvar...hvar...hvar er allt?
Ja há. Sei sei já....jáájáá...
Engisprettuhljóð heyrist
*hóst*
Segið þið ekki allt gott annars?
En...hvar...hvar...hvar er allt?
Grætur
Horffin! Veskan mín er horffin!
lítur flóttalega í kringum sig
er ég á réttum stað?
Neineinei, ég sagði niður götuna, framhjá kirkjunni og til HÆGRI.
Svona svona. Allt er í fríi.
Mér líkar það ágætlega. Tabula rasa og allt það.
Kemur með gömlu commodore 64 "tölvuna" og nokkra aukahluti
Sko, fullt af áfengi með, nú ætti hver tuska að kjafta á þér í kvöld minn kæri Hakuchi
xT[/s]
Allt skriferíið er farið! Og allt yrkeríið! Og allt bullið!
Hvar í fjandanum hafið þið verið? Hvurn andskotann á þetta að þýða? urrar Hvurn andskotann átti ég að gera í þrjá mánuði án Baggalúts? Það er ykkur að kenna að ég hef komið meiru í verk í sumar en til stóð.
Það var ekki vonum fyrr að þetta sumarfrí tók enda. Ég þurfti að virkja allar mínar heilasellur til að rifja upp lykilorðið þegar ég skráði mig inn áðan.
Blótar herfilega og rífur hár sitt. Fer síðan að leita að Teningahöllinni
Hvaða hvaða, þó svo að það séu smá gangtruflanir fyrst um sinn. Dettum bara í það, þetta leysist af sjálfu sér. Leggst í kæruleysi og fær sér ákavíti Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ferlega er allt... hvítt eitthvað. Jæja, kannski hjálpar þetta smávegis gegn skammdegisþunganum.
Velkominn reginn. Megir þú auðga anda okkar allra.
Lætur reginn fá fötu og gamla tusku
Þú byrjar á því að skúra gólfin. Hér er ekki borgað meira en lágmarkslaun og persónuafsláttur er tekinn upp í skuldir.
Loksins, loksins, loksins ! Ljómar upp eins og nýsprungin súpernóva (alls ótengd sk. rokkstjörnu) af björtustu gerð.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að það gleður oss að sjá gestafjöldann hjer, drykkjurúta, skáld, gjörspillta ráðherra og embættismenn, hernaðarsinna, vísindamenn og ritstjórnarmeðlimi o.s.frv.
SKÁL !!! Sýpur á drykk. Uppgötvar allt í einu að hann er eigi fagurblár. Hrökklast afturábak og hrasar um grjótklump.
Íííííííívar ! Hvar eru fagurbláu kóbaltklumparnir úr námunni á Suðurlandi er áttu að vera hjer ? Horfir ringlaður á tómlegt umhverfið.
Lítur í kringum sig
Hér er allt eins og það á að vera.
Vlad, klumparnir eru í minni vörslu. Ég mun láta þá af hendi þegar ég hef fullvissað mig um að ekki er ein arða á þeim sem gæti leitt til þess að rekja megi uppruna klumpanna. Laumupúkaþráðinn skal finna með öðrum leiðum.
Hvað er með þetta fjólubláa rugl?
Ég held að nú sér klárlega kominn tími á GRUPPEKNUS!
Stekkur til og faðmar alla nærliggjandi
Knúsar Tigru. Rifjar upp hvað feldurinn er mjúkur og ákveður að knúsa Tigru oftar