— GESTAPÓ —
Enn er kveðist á
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 452, 453, 454, 455  
GESTUR
 • LOKAР• 
Afbæjarmaður 17/4/06 17:46

Líkar þettað lista vel
ljómar páska sólinn,
ég hef bæði skráp og skel
skrölti uppá hólinn.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heiðglyrnir 17/4/06 22:20


Hólinn baðar hlýja sólin
heit-a og bjarta leit
Fólinn laðar, flýja gólin
feit-ar ær á beit

Sir Heiðglyrnir Hinn Hugdjarfi, Riddaramennska er lífsstíll.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 17/4/06 22:38

Beitti ég mínu músafési
mörgu þannig kom í verk.
tók mér far að Fagranesi
farsæld var þar góð og merk.

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Húmbaba 17/4/06 23:14

Merk er saga margra góðra,
manna, líkt og kvenna.
Að muna afrek mela óðra,
mun ég ekki nenna.

Fjandinn, Heiðglyrninr, þín vísa er betri en mín. Mér er skapi næst að fara fram á að ,,eyðir" verði notað fremur en ,,nenna"

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heiðglyrnir 17/4/06 23:16


Merk er saga sú um klerk
syndaraflausn greiðir
Verk hans naga sál og serk
samviskunni eyðir

Sir Heiðglyrnir Hinn Hugdjarfi, Riddaramennska er lífsstíll.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 18/4/06 14:56

Nenni ekki núna
neinu.
Brenni ekki brúna
beinu.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heiðglyrnir 18/4/06 17:39


Beina hnaut um braut og fer
breið-an veg um skeið
Greina braut ég hlaut og hér
heið-in fær og greið

Sir Heiðglyrnir Hinn Hugdjarfi, Riddaramennska er lífsstíll.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 18/4/06 18:14

Greiðvik mjög er gæsin þessi
gaman væri að klípí hana.
Neisko, þetta er Bjarna Bessi?!
í bleiku pilsi að leika Kana...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heiðglyrnir 18/4/06 18:46


Kanana bjóðandi banana mey
belgjandi sig hér um sveit
manana hjóðandi á hanana ok.
helgandi sér, ja hver veit

Sir Heiðglyrnir Hinn Hugdjarfi, Riddaramennska er lífsstíll.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hugi 18/4/06 19:57

Veit ekki, var mér bannað,
að vera hérna líka?
Það væri eins og annað.
Óli píka.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 18/4/06 20:02

Heiðglyrnir mælti:


Kanana bjóðandi banana mey
belgjandi sig hér um sveit
manana hjóðandi á hanana ok.
helgandi sér, ja hver veit

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hugi 18/4/06 20:16

Hugi mælti:

Veit ekki, var mér bannað,
að vera hérna líka?
Það væri eins og annað.
Óli píka.

Var eikkað að þessu?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 18/4/06 20:21

Já.! Hagyrðingaverksmiðjan - bragfræðispjall Lestu þennan þráð þar lærði ég reglurnar.

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hugi 18/4/06 20:23

Hvað reglu braut ég?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 18/4/06 20:33

Veistu lítið væni kall
vísan þín er hræra,
Hér við ekki höfum spjall
Huginn þarf að læra.

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hugi 18/4/06 20:34

Offari mælti:

Veistu lítið væni kall
vísan þín er hræra,
Hér við ekki höfum spjall
Huginn þarf að læra.

Hvað er að henni? Seigðu mér það.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 18/4/06 20:36

Það er bara ekkert að vísu Huga. Vísa Offara er verri.

Færeyingur • Einfættur • Mannæta
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 18/4/06 20:39

Hugi mælti:

Veit ekki, var mér bannað,
að vera hérna líka?
Það væri eins og annað.
Óli píka.

Píka er orðið...

Færeyingur • Einfættur • Mannæta
LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 452, 453, 454, 455  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: