Bjórlíkið ég sakna sárt,
sú er minning hrein.
Bragðgott var það kælt og klárt,
og kroppsins banamein.
Banamein kappans var bjórdrikkju þamb
bókað í kirkjunnar skræður´´
hann gaf upp andan hræddari en lamb
hver er sem örlögum ræður?.
[obbobbobbb... ekki rétt stuðlað...
upp gaf hann öndina hræddari en lamb, betra væri:
Hann gaf upp öndina hræddari en lamb.
Skabbi]
Er þettað betra Skabbi sæll , Kveðja ! lappi
Ræðumaður rauk á svið
og ríkulega söng
um undurfegurð innan við
ungmeyjar leggöng.
gönginn lyggja greið þar inn
gjáinn veislu lofar
sumir vilja fáfarinn
forarpyttinn ofar
Ofan mittis er nú fátt
sem ómaksins er vert
þó túttur klípa tvær þú mátt
og troð´í kokið bert.
Bert er holdið bragsmiðanna
bjargvættur á stundum.
Líkt er það á meðal manna
og marklaust gelt í hundum.
Ég þakka Lappa fyrir að taka leiðsögn.
Hundur geltir, vá í vændum,
vofa svífur.
Læðist um í loft hjá bændum,
loftið klýfur.
Klýfur fjöll í Fragradal
ferðalangur glaður,
nefnist hvorki Örn né Al
enda þýskur maður.
Maður oft á mótin fer
mætir öðrum fríkum.
Það er gott að gamna sér
með góðra manna líkum.
Líkum aldrei leggst ég með
lostasjúki perri
hef ég ekki heyrt né séð
hingað til neinn verri.
Verri er greddu gyrndar fól
gævu engri sinnir,
vesælt hræ er hræsni ól
hvötum sínum brynnir.
Brynnir músum Bjarni Þór
blegist út af mat.
Ekki varð hann ógnarstór
það auma matargat.
Matargatið hann Marteinn Sveinn
svakalega feitur
aldrei verður hann aftur seinn
að æta þessar geitur
[obbobb... þú strandar á stuðlabergi... Skabbi]
Matar gatið,Óli mikið át
mjög í pizzur sótti,
og hafði á gömlum konum gát
gengdarlaus sá ótti.
Skabbi, sæll.
Veð ég elgin í fávisku heimskunnar?
Matar gat ég miður neytt
í morgun því ég svaf,
vondum draumi vítt og breytt
ég varúð mína gaf.
Ah..of seinn.
En við nánari athugun þá er lappi vaðandi í stuðlavillum að vanda.
Verð að láta kvæðið standa.
Gaf ég eitt sinn gæfu mína,
góðum vini mínum.
Óðar tilt'enn'oná sína,
er þó fríður sínum.
Sýnum er það ekki?
Sjónarhringur minnkar mjög
meðan snjókorn falla.
Á landið hríðar lægðardrög,
ljót og dimm nú falla
p.s. Lappi, þetta er eitthvað bjagað hjá þér... eitt ráð, hafðu þetta einfaldar ferskeytlur, með stuðul í þriðja braglið fyrstu og þriðju línu og passaðu gnýstuðlun og þá eru 80% líkur á að þú gerir rétt... ekki hætta eins og einhver var að hvetja þig til að gera... þú getur líka lesið bragfræðiþráðinn sem er þriðji efsti þráðurinn á Kveðist á
Falla dómar fyrir rest
fáeinir á lappa
þó lofa skal því langt það sést
að ljóðin fylgja kappa.