Duggar og duggar bátur,
duggar um hafið allt.
Skipstjórinn borðar slátur,
sem er löngu orðið kalt.
[hmm... já... ágætis tilraun, en gnýstuðlun er ekki rétt (sk og sl stuðla sér ásamt fleirum)...Skabbi]
Tileinkað forsætisráðherra vorum og stjórnkænsku hans:
Duggu sinni Dóri á
djarfur siglir úfinn sjá.
Aftur fram og út á ská
Enginn sigla betur má.
Ákveður að hunza innlegg Donna í bili og biður Skabba að taka hann í tíma
Málið er í morgunsárið
mikilvægt að byrja vel
kristalduft í kaffitárið
kjarnafæðu besta tel.
Telecasters teygji streng
tónninn heitir G
Yggldur hoppa í einum keng
upp svo lyfti hné.
Hné á situr hnáta ein
hnýtir lokka fléttu
Flissandi í baki bein
bifar máli léttu
léttu á þér láttu það
lagsi eftir þér
að svo búnu oní bað
öslaðu með mér
Mér er illt í mjóhrygg og
mænuskaða hef ég,
oft á tíðum fæ ég flog,
freta' á meðan sef ég.
ég hef velkst um víða
væflast lönd og strönd
jafnvel reynt að ríða
rauðri pekingönd
Pekingandarpíka,
pínkusmá og þvöl,
lof mér núna líka,
linntu minni kvöl.
Pekingandarpíka,
pínkusmá og þvöl,
lof mér núna líka,
linntu minni kvöl
Kvöl mín kunn er flestum
körlum sem hafa lim
Kvinnum er sofa hjá prestum
kitlar í neðstu rim
Rimin nú er brotið blað.
best mun hana að laga.
Ef að Nonni nennti að,
negla, hamra og saga.
Saga mannkyns sögð mér var
og sýnd í riti.
Fannst mér koma fáir þar
fram með viti.
Viti bornir vaskir menn
veröld þessa byggja
Þeirra verður áfram enn
öll í felum bryggja
Bryggjan tómleg tekur í
týndust fiskimiðin
Fer ég því á fyllerí
fokk sá tím'er liðinn
Liðin er sú ljúfa tíð
er lékum við í næði
Einn við barinn sit og bíð
böggla saman kvæði
Liðinn senn er sumar tími
sest þá haustsins myrkur að,
kvíðin út í kulda hými
kvergi á hann næturstað.
Of seinn
Kvæði rétt ei gera kann
kann ekki að ríma,
alldrei réttar rúnir hann
reindi við að glíma,
Glíma margir gátur við
og svarað geta ekki
engum vinum veitir lið
er heilinn vill í kekki