Pigen min er flot og fin,
frokost tar med mig.
Du er lige dum som svin,
damer afskyr dig.
digur ertu dóninn þinn
dönsku hampar líka,
bísna góður bragurinn
en bölvuð, sjálfur, píka
HoHoHo
Nei þú ert nú reyndar alveg ágætur, en hvað gerir maður ekki fyrir Braga
Píka er partur af fiski
ef pjökkuð er styrtlan af
Slíka ég dró af diski
og dýfði í sósu á kaf.
Kafka forðum furðubók
færði í letur
vaknar hamskipt burablók
bjöllutetur
bjöllutetur vor sem vetur
við þig get ég unað
sjaldan met á braut þú setur
samt með freti brunað.
brunað getur blind er hríðin
bölvar þarna gaur
"fögur virðist fráleitt hliðin"
fargast svo á staur
ástandið var karlakvöl
en konum þóttu æði
könum fannst það dýrðar dvöl
dreyfðu þeir hér sæði
Sæði enn nú drjúgum dreyft
dansmeyjar það bjóða
Finnst hér æði að sé leyft
að mjólka ykkur til gróða
Gróða skúrin gefur senn
garðabrúði lífið.
Sóða búrinn sefur enn.
Serðir lúði vífið.
Þessi er nú með þeim sárri sem ég hef bögglað saman um ævina.
vífið margt nú mænir á
merka voffa stöku
iða þau nú upp við skjá
yfir sæti röku
raka buddu barðist við
beyddi stúlku kindin
við hana sagði "gefðu grið"
gólaði "burtu sindin".
Syndin margan sómapilt
sett hefur í vanda.
Ef sig glennir táta tryllt
Tuma fer að standa.
Standa traustir stuðlar,
styrkir höfuðstafir.
Rími Barbi bruðlar
á bögum verða tafir.
tafir verða á bulli brags
bögglist lengi rímið
við að skreyta leita lags
ljóð svo verði kímið
Ljómar upp
íði-fagrar freðkuntur
flissa bakvið steina
heimins mestu moðtruntur
má ég frá þeim greina
greina sveinar gróðavon
í gengi háu
því hækkun lækkun lon og don
þeir lengi sáu