Jæja ekki tók það langan tíma að finna bókina. En hvernig ætli ykkur gangi að finna atburðinn/atvikið?
Spurt er um atburð/atvik.
Er um að ræða mikilvægan atburð í heimssögunni?
Eða eitthvað ómerkilegt eins og þegar ég datt og reif Hummel gallann minn?
Kæri Sverfill þar sem að Hummel galli kom við sögu að þá er þetta ekki ómerkilegt.
Tengist þessi atburður stríði í Asíuríki?
Frelsihetjan: NEI
Dordingull: NEI
Von Klinkerhofen: NEI
Sverfill: Nógu mikilvægur til að getið sé um hann í heimildum frá þeim tíma. Ég get ekki metið hversu miklvægt/léttvægt það var miðað við það þegar þú reifst Hummelgallann þinn.
Tengist þetta landafundum? (og þá á ég ekki við heimabrugg Hrökklast aftur á bak og hrasar við )
Fyrir 1300 ?