Afhverju hef ég ekki orðið var við umræðu um möguleika Botnleðju í Júrósýn um árið, þeir spiluðu jú hressilega rokktónlist og íklæddust búningum, eins og sigurvegararnir í nýliðinni keppni. Náfrændur okkar Finnar hafa greinilega meira undir sér en kúgaðir Íslendingar það er nokkuð ljóst.
Íslendingar kúgaðir? Aldrei. Botnleðja var bara á undan sinni samtíð.
Hæ Lessa Hressa.Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
það var skandall að Leðjan fór ekki um árið en við því verður ekkert gert úr þessu.
Íslendingar kúgaðir? Aldrei. Botnleðja var bara á undan sinni samtíð.
Rjett er það en því miður voru þeir nánast einu Íslendingarnir er á þessum tíma voru á undan sinni samtíð.
Eftir þessa ábendingu um framsýni Botnleðju höfum vjer þá þar af leiðandi grunaða um að hafa komist yfir tímavjel. Það er of mikil og grunsamleg tilviljun að allir tónlistarlega framsýnir Íslendingar hafi verið í sömu hljómsveitinni á þessum tíma.