Já ég vildi bara koma á framfæri hneykslun minni yfir framkomu Silvíu Nætur/Ágústu Erlendsdóttur gagnvart aðdáendum sínum í gær, þegar hún mætti ekki á áður auglýsta samkomu á Esso-stöð hér í borg. Börnin grenjandi, foreldrarnir bölvandi og svo einhverjir útbrunnir leikarar að reyna að fara í gerfið hennar og aðstoðarmannanna. Svona á ekki að koma fram. Hvorki við börn né fullorðna.
Umboðsmaður barna ætti nú að vinna fyrir kaupinu sínu og rita Páli Magnússyni útvarpsstjóra og forstjóra ESSO (hver svo sem það er núna) alvarlegt bréf, krefjast afsökunar og einhverra yfirbóta af hálfu Sylvíu.
En hvað er til ráða til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig? Mín tillaga er í heiti þráðarins.
Við skulum alla vega brenna ESSO-stöðvarnar! Kaupir eldspýtur af lítilli stúlku
Ég verð að taka undir með ykkur um það að afar ósmekklegt og mikill dónaskapur felst í því að senda "eftirhermu" sem eitthvað grín í staðinn fyrir Ágústu í gervi Silvíu.
Það hefði verið nær að alls engin fígúra kæmi á staðinn heldur kæmi að minnsta kosti einhver fulltrúi sem gæti skýrt á staðnum hvers vegna hún kom ekki og einnig til að biðjast afsökunnar. Þannig hefði fólk fengið skýringu og afsökunarbeiðni en ekki eitthvað rugl.
Þarna kom hið rétta innræti í ljós þó ýmsir hafi haldið öðru fram.
Og svo á þetta viðrini að keppa fyrir okkar hönd í júróvísíjón?
Ég sagði það frá því að ég sá þetta viðrini fyrst. þetta er óþverramanneskja.
Blikkar augunum mjög hratt og þykist vera í trans
Æjjj héddna skilörru, ég er´bara sko svo obbosla fræg skilörru að ég ætlekkert að mæta á ýkt halló gjes steisjon skilörru.
Smjattar á tyggjói og lætur sig hverfa
Röltir blístrandi aftur inn
Svona framkoma er að sjálfssögðu fyrir neðan allar hellur og fær hún þetta í andlitið um leið og hún kemur alltof snemma heim úr þessari keppni!
Þarna kom hið rétta innræti í ljós þó ýmsir hafi haldið öðru fram.
Og svo á þetta viðrini að keppa fyrir okkar hönd í júróvísíjón?
Hún sómir sér vel í þeirri viðriðnakeppni. Kosturinn við Júgravísjón er að það er ekki hægt að sökkva neðar í þjóðlegri niðurlægingu, þátttakan ein tryggir slíka smán. Það er að vísu visst frelsi fólgið í því. Hví þá ekki sleppa sér, fyrst engu er að tapa og ekkert að vinna?
Ég vona að þessu skrípi verði vísað frá keppni, þar sem hún neitar að taka út klúryrði úr textanum. Svo finnst mér það fyrir neðan allar hellur að hún skyldi svíkja blessuð börnin.
Maður hálfpartinn saknar DV þegar svona hlutir gerast.
Ég vona að þessu skrípi verði vísað frá keppni, þar sem hún neitar að taka út klúryrði úr textanum. Svo finnst mér það fyrir neðan allar hellur að hún skyldi svíkja blessuð börnin.
það er óþolandi yfirgangur og dónaskapur að ætlast til þess að listamaður breyti texta fyrir þessa keppni.

Það að heimta að menn vandi mál sitt í þessari keppni, eins mikil andans öræfi og hún er, hljómar eins og skilgreiningin á kaldhæðni.
Ég vona að þessu skrípi verði vísað frá keppni, þar sem hún neitar að taka út klúryrði úr textanum. Svo finnst mér það fyrir neðan allar hellur að hún skyldi svíkja blessuð börnin.
það er óþolandi yfirgangur og dónaskapur að ætlast til þess að listamaður breyti texta fyrir þessa keppni.
Ef mér skjöplast ekki þá er hún nú þegar búin að breyta textanum til hins verra frá því, sem hann var í upphafi.
En hvað er maður svo sem að gera veður útaf þessu? Fyrst þjóðin var nógu heimsk til kjósa þetta viðrini verður bara að taka afleiðingunum.
Nákvæmlega. Og þjóðin er...allir þeir sem hafa vel þálfaðan þumalputta?
Er ekki í lagi með ykkur, Silvía er persóna, líkt og Lína langsokkur, skiptir það máli hver leikur hana?
Lína langsokkur væri nú frekar furðulegur karakter ef t.d. Örn Árnason léki hana...