Komið sæl vinir og samferðamenn
Ég veit ég hef ekki verið mikið inni á Gestapó undanfarið en ég fylgist með hvað er að gerast og skemmti mér ávallt djöfullega.
Ég rakst á bloggsíðu nú í dag og brá mér heldur mikið að sjá efnið sem þar er birt. Um ræðir orðréttar afritun-og-límingar af síðum Baggalúts án þess að gera grein fyrir höfundum. Viðkomandi birtir efnið sem sitt eigið og finnst mér agalegt að horfa upp á þetta, sérstaklega þar sem hann hefur fengið hrós fyrir skrifin í ummælum gesta síðunnar.
Slóðin er: http://kristmann.bloggar.is/blogg/
Ég legg til að Gestapóar stormi inn á þessa bloggsíðu og láti lesendur vita að hér sé á ferðinni ritstuldur og það af verstu sort
Kærar kveðjur
Hóras
Hræðilegt! Það ætti að hengja þennan mann upp á stórutánum og snúa ítrekað upp á geirvörturnar á honum.
o fær hann ekki að kenna á því þegar allir vinir ritstjórnar segja honum að skammast sín. Annars er sorglegt að fólk skuli ekki hafa meira ímyndunarafl nú til dags.
Hann fær nú að kenna á því á annan hátt en eingöngu ummælum á síðu hans. Það var þessi Kristmann sjálfur sem bað mig um að lesa bloggið sitt af því það væri svo mikil snilld. Ég er að vinna með þessu fífli og á von á að hitta hann í kvöld. Aðrir vinnufélagar verða staddir þegar ég sanna á hann ritstuldinn fyrir allra þeirra augum.
Svo maður sletti nú aðeins... NICE!
Ég tel að eldur og brennisteinn geti verið jafn- ef ekki meira viðeigandi í þessi tilfelli. Hér er ekki um gáleysisglæp að ræða. Hér er á ferðinni vísvitandi og vítaverður afbrotavilji í þeim eina tilgangi að upphefja eigin persónu.
Til eru mörg orð yfir svona menn. Þjófur. Hermikráka. Hugvitleysingur.
Kúkalabbi!
Oh fær hann ekki að kenna á því þegar allir vinir ritstjórnar segja honum að skammast sín? Annars er sorglegt að fólk skuli ekki hafa meira ímyndunarafl nú til dags.
Kúkalabbi, segi ég!
Oh fær hann ekki að kenna á því þegar allir vinir ritstjórnar segja honum að skammast sín? Annars er sorglegt að fólk skuli ekki hafa meira ímyndunarafl nú til dags.
Kúkalabbi, segi ég!
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Ísak er snillingur í öllum víddum
xT
Gefur Ísaki hrökkbrauð og sendir hann í rúmið
Svona! Ekkert múður.
Ég hef nú þegar skrifað skammarathugasemd ásamt flestum ykkar. Einnig gefið út sönnunarlista með hlekk á hverja og eina frétt þannig að allir geta séð sjálfir á einfaldan hátt. Svo skrifaði ég í gestabókina kusteisa athugasemd.
Úff ég verð bara ill á að sjá svona.
En já ég lagði líka orð í belg. Mikið ofboðslega er þetta ómerkilegur gaur.
Hóras, ALDREI leyfa honum að gleyma þessu!
Hananú - eruð þið fáráðlingarnir nú búnir að grafa upp eina staðinn á alnetinu þar sem maður gat farið og stolið sér efni í friði?
Alltaf þurfið þið að eyðileggja allt fyrir manni.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Úff ég verð bara ill á að sjá svona.
En já ég lagði líka orð í belg. Mikið ofboðslega er þetta ómerkilegur gaur.
Hóras, ALDREI leyfa honum að gleyma þessu!
Kemur ekki til greina að leyfa það. Ég hef svo sem aldrei haft ástæðu til að bera virðingu fyrir þessum manni áður, núna er ég bara kominn með staðfasta ástæðu fyrir því hvers vegna ég ætti ekki að gera það