— GESTAPÓ —
Skrýmslið er dautt!
» Gestapó   » Efst á baugi
        1, 2, 3
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 1/5/06 17:16

Ég er sammála Gálkninu eins og oft áður.
Ein hliðin er t.d. þessi. Kannske fær þá dauðvona vesalingur sem var misþyrmt og misnotaður kynferðislega í æsku að búa í bílhræi án þess að DV tilkynni hvar sé hægt fnna ræfilinn og berja hann. Ég er að tala um Steingrím Njálsson.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 1/5/06 17:26

Ég er sammála Vímusi.
Það er ekkert sem getur réttlætt það sem maðurinn gerir, en ekkert réttlætir heldur það sem að honum var gert í æsku... og það sem fólk er að gera manninum í dag.

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 1/5/06 17:29

Það er skömm réttar og heilbrigiskerfanna að sjúkir og hættulegir glæpamenn fái ekki viðeigandi meðferð og vistun.
Þá nýtísku afsökun illvirkja og skítseiða fyrir glæpaverkum sínum að einhver hafi verið vondur við þá þegar þeir voru litlir tek ég ekki gilda.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 1/5/06 17:41

Tigra mælti:

Ég er sammála Vímusi.
Það er ekkert sem getur réttlætt það sem maðurinn gerir, en ekkert réttlætir heldur það sem að honum var gert í æsku... og það sem fólk er að gera manninum í dag.

Að DV hafi lagt þennan sjúka vesaling í einelti er auðvitað sjúkt líka.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 1/5/06 17:43

Enda sagði ég að þetta væri engin réttlæting... en það réttlætir heldur ekkert fólkið sem fer og ber manninn í köku... það hjálpar engum, hvorki honum, þeim, né börnunum sem gætu þurft fjölda ára í meðferð eftir þetta.

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 1/5/06 17:49

Mér finnst þið vera ósköp kurteis við hræið í ræsinu börnin góð.

‹Sparkar meir í DV›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 1/5/06 18:01

Veit, en í hópi þess mikla fjölda einstaklinga sem feraðst með þessarri jörð verður því miður alltaf einn og einn sem er sjúkur að þessu leyti.
Það er því samfélagið sem hann lifir í sem bregst ef hann fær áratugum saman að fremja glæpi sína nánast óáreittur.
Að henda fárveikum manninum á Hraunið öðruhvoru var/er fáránleg ráðstöfun.
‹Ekur skítadreifaranum yfir DV-hræið›

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 1/5/06 18:03

Steingrímur hefur aldrei afsakað sig með einu eða neinu. Hann viðurkennir einfaldlega ekki að hann hafi gert nokkrum manni illt. Hann vill ekki þiggja neina aðstoð né hjálp. Mun mannúðlegra hefði verið að skjóta hann fyrir mörgum árum.
Það hefði bjargað mörgum hans fórnarlömbum. Ritstjóra DV hefði mátt skjóta í leiðinni. En hvar verður samúð manna með þeim fórnarlömbum Steingríms sem koma til með að feta í fótspor níðingsins. Er ekki sagt að ákveðinn hluti þeirra verði svona líka? Til öryggis ættum við kannske að skjóta þau öll.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 1/5/06 18:10

Ráðaleysi Kerfisins varðandi suma verulega sálsjúka og ólæknandi einstaklinga er ansi sláandi. Ef ekki er hægt að lækna menn eins og Steingrím og endurhæfa þá þarf að læsa hann inni og halda frá samfélaginu. Þá á ég ekki við Hraunið.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 1/5/06 18:19

Hakuchi mælti:

Mér finnst þið vera ósköp kurteis við hræið í ræsinu börnin góð.

‹Sparkar meir í DV›

Hárrétt! Þetta snýst um hræið. Ég skrepp út í búð og stel DV. Ég á skó með stáltá sem koma til með að nýtast í spörkin.

‹Ljómar upp og reimar á sig skóna.›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 1/5/06 18:29

Það er af mörgu að taka. T.d hefði sá hálfi miljarður sem komin er nú þegar í Baugsmálið af hálfu ríkisins sennilega nægt til að koma flestum þeim veiku einstaklingum sem margir hafa framið hryllilega glæpi fyrir á viðeigandi stofnun í tíma.
En þeir baugsfeðgar eru auðvitað mikið hættulegri en þeir sem skera fólk í gúllas og nauðga börnum því þeir mökkuðu ekki rétt við stóru glæpafélögin sem stjórna landinu.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Stelpið 11/5/06 20:59

Tigra mælti:

Enda sagði ég að þetta væri engin réttlæting... en það réttlætir heldur ekkert fólkið sem fer og ber manninn í köku... það hjálpar engum, hvorki honum, þeim, né börnunum sem gætu þurft fjölda ára í meðferð eftir þetta.

Jamm, having been fucked is no excuse for being fucked up, eins og skáldið sagði.

LOKAÐ
        1, 2, 3
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: