Þá er hinn svívirðilegi saursnepill DV loksins loksins dauður. Eða svo til. Neytendur kviðristu kvikindið eftir að það fyllti mælinn með skólpgusu í byrjun árs. Persónulega finnst mér álíka óútskýranlegt og dularfullt af hverju DV lifði svo lengi með sín 20% af blaðamarkaðinum og af hverju George Bush hefur verið með yfir 1% ánægjufylgi allt sitt kjörtímabil. En það er líklega af því að ég vanmet í sífellu mátt hálfvita. Þó er það dautt, svo til. Ég vona innilega að þeir blaðamenn sem voru reknir muni snúa sér að öðrum vettvangi en blaðamennsku því ég held þeir séu að misskilja starf sitt.
Blaðið er ekki alveg dautt en verður vonandi meinlaust það sem eftir er.
Ég legg til að við skálum fyrir dauða þess og spörkum í það liggjandi eins og það gerði við svo marga einstaklinga á sínum ferli.
Skál! xT
Sparkar í maga DV í hermannaskóm með stáltá
Sparkar í rassinn á DV með oddmjóum kvenmannsstígvélum
Já, skál.
Kippir í Mallemuk
Hrrmm hmm...
Bendir á DV liggjandi í ræsinu
Sparka takk.
Reimar á sig takkaskóna, tekur tilhlaup, miðar á höfuðið og BÚMMMMMM
Minn maður.
Gefur Mallemuk hnausþykkan Kúbuvindil
Takk.
Hellir koníaki í glös.
Sparkar fast í kviðinn á DV
Ég hef nú hingað til forðast það að hafa skoðun á sneplinum þar sem ég les/las þetta afar sjaldan en ég get nú ekki stillt mig um að gera þetta: hrækir á hræið
Treður á draslinu og hrækir á það
Mikið agalega eru þetta góð tíðindi. Þessi viðurstyggilegi dónableðill hefur verið Íslendingum til skammar. sparkar af öllu afli í hræið
Sparkar nokkrum sinnum duglega í hræið Helvíti, kvikindið hefur eyðilagt skóna mína... Sparkar nokkrum sinnum í hefndarskini
Kemur aftur inn og dansar á hræinu
Ég sé fyrir mér fyrirsögnina;
Æstur lýður ræðst á saklaust dagblað!
,,samfélagið og lögreglan hafa brugðist" segir skelkaður ritstjóri
Ekki er það fallegt, þröngsýnir íslendingar hafa nú gengið frá eina dagblaðinu á íslandi sem þorði að segja það sem þurfti að segja. og var ávalt tilbúið að reisa við þá sem féllu svo að við hin gætum sparkað í þá. hvernig eigum við nú að þekkja barnanýðingana, handrukkarana, þjófana og alla hina sem sem við viljum níða í svaðið svo að okkur líði betur.
lyftir undir höfuðið á DV
Takk Upprifinn, haltu því aðeins hærra, tekur annað tilhlaup á takkaskónum BÚMMM..höfuðið springur eins og vel þroskuð melóna Úje