Velkomin fröken Ólafía. Þegar þér hefur tekist að finna mannsefni hér á Gestapó, skal ég pússa ykkur saman.
Hæstvirtur herra Vladimir Fuckov; Ég hef kannski verið full bráð á mér. Kannski ég útskýri betur. Ég hafði í fyrsta lagi ekki hugmynd um að það væri forseti hér inni, og hvað þá önnur forsetafrú. Það sem ég átti við var það að það hefur verið draumur minn frá barnæsku að verða forsetafrú, sama hvað það kostar. Ég ætlaði ekki að móðga neinn og þakka fyrir kveðju þína.
Ég biðst innilegrar afsökunar ef ég hef komið við kauninn á þér.
Og hver er þessi Glúmur? Ég er ólm í að hitta hann fyrst að svo margir hafa nefnt hann á svo stuttum tíma. Er hann varaforseti?
Óttist eigi, sjeð höfum vjer stærri orð og eigi móðgast.
Glúmur er (nánast) allir gestirnir hjer að yður meðtaldri. Sumir gestanna vita þó eigi af því af óþekktum ástæðum.
Nú, ég skil. Glúmur er semsagt samnefnari yfir alla gesti hér inni? Eða er einhver sem er ekki Glúmur?
Dr. Zoidberg: Hárrétt! Þið eruð aðilinn sem þarf að vera í samskiptum við mig. Ég sé að þú þekkir þinn stað í lífinu, enda læknir. Og svona bráðmyndarlegur þar að auki.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Nú, ég skil. Glúmur er semsagt samnefnari yfir alla gesti hér inni? Eða er einhver sem er ekki Glúmur?
Þar sem þú ert Glúmur, þá áttu ekki að þurfa að spyrja slíkrar spurningar... en jú ég er t.d. Glúmur og allflestir sem hafa svarað þér... en ekki allir...
ÉG ER GLÚMUR !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Hleypur um nakinn með ameríska fánann um sig miðjann
'Eg er sko engin glúmur Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Sumir eru í afneitun.
Takk, öllsömul!
Geislandi bros og virðuleg veifa til mannfjöldans
Elsku besta Ólafía. Af hverju aðeins forseta frú þegar þú gætir orðið frú forseti .?
Haha! Kona forseti? Nei, karl minn, slíkt hefur nú ekki tíðkast hingaðtil, og er ekki líklegt í komandi framtíð. Konur eiga að þekkja sína hillu og halda sig þar, annað leiðir bara til vandræða.
Er gráti næst þegar hún rifjar upp sársaukann frá því þegar hún fór óvart inni í herrafatabúð sem hún hélt að væri kvennafatabúð