Falún-Gong & frændur hans
friðelskandi vilja
mannréttindi (meikar sans).
Má það allvel skilja.
Skilning, sína skoðun telja
skálkar, sóma-fólk
Rétt og líka rangt þau selja
raða eftir sínu og velja.
.
Ónefnd afbrigði við stikluvik
Velja, dvelja; sumar, sól.
Selja, telja hagnað.
Elja, hvelja; byggð & ból.
Belja heljar; magnað.
Magnað hefur margan seyð
mannvits-brekku undur
verk og leiða veiða greið
vírus deyða, eyða neyð
Neyðist til að norpa hér
næstum ljóða kalinn
Áfengið í æðum mér
óðum færir galinn
„Galinn“ ertu, góði minn
og grunsamlega lætur.
Ertu Portú-, eða hinn
undra-söngfugl, Nætur-?
Næturlífsins nýt ég best
nótt við daginn legg ég.
Ég er nú með góðan gest
Gagnast það mér alveg.
Vegi þínum vöggu frá
vertu ern og kátur
Logandi af lífsins þrá
leystu þessar gátur:
Hver er ég? Hver ert þú?
Hvers vegna við lifum?
Hylst máske til himna brú
hátt í fjallaklifum?
Gátur lífsins grunar oss
að gerðum okkar stjórni
flækjum hluti, hengjum kross
háls um. Sannleik fórni
fórnað degi heilum hafa,
hagyrðingar falla
engum tókst víst upp að grafa
orðaleppa snjalla
Svalla ég í Sviss
Svaka er ég viss
Ölvaður er, iss
út úr mér fer piss
Uppáhellingin og gin
gerist varla betra
en Ballintines og bollan hin
best þó er 12 vetra
Þökk sé að ég er nokkuð góður í hljóðkerfisfræði en svoldið slakur í málfræði.
Lopi beitir þó svo skemmtilegu afbrigði í þessum fyrriparti að lofsvert er.
12 vetra með tippaling
Toddi gladdi Stínu
13 hann einn þurfaling
þin með olli pínu
hér er allt með rólegra móti svo ég kveðst bara á við mig sjálfan fyrst ekkert betra gefst
Pína það er stráki stendur
stöðugt undir maga
Fína nægju höndla hendur
Haðar alla daga[/s]
Vegi þínum vöggu frá
vertu ern og kátur
Logandi af lífsins þrá
leystu þessar gátur:
Hver er ég? Hver ert þú?
Hvers vegna við lifum?
Hylst máske til himna brú
hátt í fjallaklifum?
Fjallaklifum himna hátt
hylst í dulin brú & saga.
Lífið opnast uppá gátt
okkar nær er þrýtur daga.
12 vetra með tippaling
Toddi gladdi Stínu
13 hann einn þurfaling
þin með olli pínu
Pínu, kvalir, pyntingar
(Píslar- því greinir frá -saga)
mátti Kristur þola þar,
& þjáning, á fastandi maga;
alla lífsins langa föstudaga.
hér er allt með rólegra móti svo ég kveðst bara á við mig sjálfan fyrst ekkert betra gefst
Pína það er stráki stendur
stöðugt undir maga
Fína nægju höndla hendur
Haðar alla daga[/s]
Útúr athugasemdinni að ofan mætti lesa að hér hafi Nafni aftur verið að verki. Ef svo skyldi vera (sem ég er þó hverginærri viss um), ætla ég að gerast svo djarfur að blanda mér inní einkadansinn:
Dagar líða, vikur víkja,
vorið dansar útí haga.
Fer ég brátt í frí að kíkja;
fagra, langa sumardaga.
he he..........
Daga alla drátthagur
drottinn lífið teiknar
Hurðaskellir heilagur
hafgoluna reiknar