mubli 28/04/06 - 22:25
Hindberjasaft sýpur Bípur
& siglir með fleyi til Kýpur
þar smjörið sem dögg um allt drýpur
og drýslarnir ganga' um með strípur
ég held að þessi gangi nú alveg hinsvegar er of langt á milli stuðla í þriðja vísuorði í strípuvísunni.
samt er nú alveg öruggt að lélegri vísur hafa sloppið í gegn óátalið.
Meira djöfulsins ruglið!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Laumast aftur inn
Annars hafði ég hugsað mér að þræða frá mubla en stökkva yfir Gröndal, eins og Hlebbi gerir. Mér finnst þó að eitt þurfi yfir alla að ganga hér og stökk því einnig yfir húsgagnið. Skringilegt að menn séu allt í einu komnir á aðra skoðun.
Skverað hef ég skrukkur margar
skringilegar kvinnur
sumar verða svæsnar, argar
í sjötta ef ekki er stinnur
Þú veist vel hvað ég á við, tuskan þín.
Fengið hef ég fjarska margar sprundir
að aftan, síðu, sorðið þrjár
en sjaldnast verið undir
þú ert bara þessu að ljúga
þetta allir vita
og þú sem stundar stinna að sjúga
steikar- fyrir -bita
helgar margar man ég ei
mættir kasta tíru.
Nú man ég smurning', smán þá... hei!
smjör- þú notar -sýru!
Vill þá einhver gera grein fyrir því hvað ég gerði rangt í vísunni svo ég geti lært af mistökunum?
mubli 28/04/06 - 22:25
Hindberjasaft sýpur Bípur
& siglir með fleyi til Kýpur
þar smjörið sem dögg um allt drýpur
og drýslarnir ganga' um með strípur
ég held að þessi gangi nú alveg hinsvegar er of langt á milli stuðla í þriðja vísuorði í strípuvísunni.
samt er nú alveg öruggt að lélegri vísur hafa sloppið í gegn óátalið.
því mun vera svarað hér.
potað get í pjásuskinn
pinna góðra verka
þannig gerir guðinn minn
góða fólkið merka
Upprifinn vísaði í rangan greiningu Isaks á rangri vísu.
Þú ert nú alveg klikkaður Hlebbi minn. Upprifinn er ekki að vísa í greiningu mína heldur eigin texta. (Þú ættir e.t.v. að æfa þig aðeins í lestri kallgreyið mitt - svona inn á milli.)
blæða tár úr báðum hvörmum mínum
að hugsa sér, hún mamma mín
með mynd af anus þínum
þínar munu þrautir illar
þessa sögu heyra vil
að Hlebbi fúli dáðlaus dillar
drullugati hér um bil
og það á mynd hjá þinni móður
þú hlýtur að verða óður
Viljum við nokkuð fyrriparta hér?
bil ég set og bölva nú,
bévítans er þrautin.
Ég er líkt og lömuð kú,
en ljúf mér þykja nautin.
Billeg vél í bílnum murrar
Blautt er regnið allt um kring
Tíkin upp á toppgrind urrar
ef tregalögin gömlu syng.
of seinn.
Nautin eru náin mér.
Nema þetta hyrnda.
Étum mjólk og ost og smér
Úr júgrum geita og kinda.
Viljum við nokkuð fyrriparta hér?
bil ég set og bölva nú,
bévítans er þrautin.
Ég er líkt og lömuð kú,
en ljúf mér þykja nautin.
nei enda var hugmyndin að þessar tvær línur stæðu sjálfar.
Kindur hafa klauf á fót
kindarlegar fréttir
Kindur æða á ættarmót
æðið „heitir réttir"
Rétti marga mun ég prófa,
á mínu grill í sumar,
beljuklaufir, hesta hófa,
og hrafn á grillið lumar.
Lumar vart en læðir þó
ljóði grills um hrafna
Smakka vild'á smiðjumó
smæla framan í Nafna