Þú ert nú meiri karlinn! Bara orðin og ekkert annað.
Leysir taumin og tárast
Réttir aulanum satínklút til að þerra tárin
Þerrar tárin
Ég er ekkert búin að fyrirgefa þér samt
Þerrar tárin
Ég er ekkert búin að fyrirgefa þér samt
Tíminn læknar öll sár, eða það vona ég alla vega. Ekkert myndi mér leiðast meira en að vita af þér sárri yfir samskiptum okkar. Þerrar klútinn, brýtur hann varlega saman og geymir við hjartastað
Veit ekkert hvað hún á að segja
Þú ert örugglega ólögulegur í raunheimum.
Veit ekkert hvað hún á að segja
Þú ert örugglega ólögulegur í raunheimum.
Hjóta ekki allir að fölna í samanburði við kvennkosti sem yður?
Hættu þessu tungulipri þínu! Vertu ekki svona mikill auli!
Hættu þessu tungulipri þínu! Vertu ekki svona mikill auli!
Ekki væri leiðum að líkjast vísar til nafns en ekki merkingar Arghmh reynir að hemja tunguna
Heill og sæll Sjálfsmorðingi. Velkominn í ríki raunveruleikans.
Þú lofar góðu og er það gott. Til frekari hliðsjónar bið ég þig um að lesa eftirfarandi leiðbeinandi tilmæli til nýliða:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=4011
Í ofanálag vil ég benda á að þessi þráður ætti kannski frekar heima í Vér ánetjaðir og legg ég til að hann verði færður þangað en á því svæði fara kynningar fram ásamt öðru sem viðkemur ánetjuðum Gestapóum.
Leiðist
Drepa sjálfið, já.... eruð þér nokkuð póstmódernist?
Íhugar eðli sitt....
Drepa sjálfið, já.... eruð þér nokkuð póstmódernist?
Vertu ekki að flækja málið, þetta er bara framsóknarmaður.
Drepa sjálfið, já.... eruð þér nokkuð póstmódernist?
Vertu ekki að flækja málið, þetta er bara framsóknarmaður.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Er þá Framsóknaratkvæðið fundiðDæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Drepa sjálfið, já.... eruð þér nokkuð póstmódernist?
Vertu ekki að flækja málið, þetta er bara framsóknarmaður.
Grætur Ja margt illt hefur verið um mig sagt, en þetta tekur nú af... Þerrar tárin en ekki skal gráta, heldur stíma fram ótrauður! Tekur fram málara pensil og striga Tjáir sig af ofsa í abstrakt verki, kveikir svo í því og brennir í táknrænum gjörningi til að hreinsa sálina
Þakka viðstöddum kveðjurnar Brosir gegnum tárin eins og fegurðardrottning í draumi
En værirðu til í að skipta um nafn... mér finnst þetta einhvern veginn ekki alveg vera að gera sig...
Sæll Sjálfsmorðingi, ég vona að nafnið þitt verði þér heillavænlegra en merkingin sjálf.
Ef að sterk er stafsetning
á svellinu stendur keikur.
En villu sértu vitleysing
verður þér enginn leikur.
Með kveðju
Ísdrottningin

hei drolla þó að þetta sé ekki kveðist á þráður verðurðu að stuðla rétt.
Nafnið bendir til að þú eigir ekki eftir að vera langlífur, Velkominn samt þessa daga sem þú átt eftir.