— GESTAPÓ —
Brúðkaup Slopps og Hundslappadrífu: Undirbúningur!
» Gestapó   » Efst á baugi
        1, 2, 3 ... , 11, 12, 13  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 18/4/06 17:12

Ég þakka það mikla traust, sem mér er sýnt varðandi undirbúnig og framkvæmd brúðkaupsins. ‹Byrjar að drekka sig til fyrir athöfnina› xT

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sloppur 19/4/06 02:31

‹Dröslast fram úr rúminu og skilur ákavítið frá bremsuvökvanum, drekkur bremsuvökvann og baðar sig upp úr ákavítinu› SKÁL!! xT

Yfirbílstjóri Forsetaembættis Baggalútíu ~ Höfðingi Ísfólksins ~ Skraddari Baggalútíska Alheimsveldisins ~ Fíkill ~ Dýflissumeistari í kjallara Teningahallarinnar ~ Hryðjuverkamaður
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sloppur 19/4/06 13:17

Jæja!

Nú styttist gríðarlega í að þetta smelli allt saman hjá okkur og er næstum búið að velja dagssetninguna! Þeir er hlutverki hafa að gegna í Athöfninni og Veizlunni, fá vitneskju um stóra daginn á undan óbreyttum geztum, sem fá vikufrezt til að taka frá stóra daginn og njóta þess heiðurs sem það er að fá að koma í Brúðkaup þetta!

Yfirbílstjóri Forsetaembættis Baggalútíu ~ Höfðingi Ísfólksins ~ Skraddari Baggalútíska Alheimsveldisins ~ Fíkill ~ Dýflissumeistari í kjallara Teningahallarinnar ~ Hryðjuverkamaður
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sloppur 19/4/06 13:19

Herbjörn Hafralóns mælti:

Ég þakka það mikla traust, sem mér er sýnt varðandi undirbúnig og framkvæmd brúðkaupsins. ‹Byrjar að drekka sig til fyrir athöfnina› xT

Jég hafði jafnvel hugsað mjér að bjóða þjér stöðu veislustjóra líka, hafir þú ekkert á móti því!

Yfirbílstjóri Forsetaembættis Baggalútíu ~ Höfðingi Ísfólksins ~ Skraddari Baggalútíska Alheimsveldisins ~ Fíkill ~ Dýflissumeistari í kjallara Teningahallarinnar ~ Hryðjuverkamaður
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 19/4/06 14:32

Vantar ekki gamla frænku sem tárast og snýtir sér í sífellu yfir athöfninni?

Skall þar hurð nærri hælum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 19/4/06 14:34

Eða gamall frændi sem segir klámsögur?

Skall þar hurð nærri hælum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 19/4/06 16:42

Ég skal drekka koníakið. ‹Ljómar upp›

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 19/4/06 16:56

Ég þarf nú að fá að vita þetta fyr, það þarf að panta hráefni fyrir matinn og undirbúa það!!!

‹Verður stressaður og drekkur "baðvatnsákavítið" frá Sloppi›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 19/4/06 21:26

Veislustjóri! Það er aldeilis heiður. Ég tek það að mér. ‹Leitar að gömlum heftum af Íslenzkri fyndni til að eiga góða brandara í veislunni›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sloppur 20/4/06 01:17

Sloppur mælti:

Kæru Gestapóar!
Hjér með tilkynnist að loxins hafa Hundslappadrífa í Neðra og Sloppur ákveðið að láta gefa sig saman og ganga í mjög svo Baggalútískt hjónaband og er þessi þráður tileinkaður Brúðkaupinu og undirbúningi þess!

Mikill undirbúningur fer nú í hönd og krefst viðburður þessi mikillar hjálpar allra þeirra er hönd geta lagt á plóginn! Til munu falla ýmis konar verkefni og störf, sem sækja þarf um hjér fyrir neðan, en þegar er búið að ráða í nokkur slík störf!

۩ Hans Riddaralega hávelborintign Heiðglyrnir hinn hugdjarfi hefir að sjér tekið að framkvæma þessa stórkostlegu athöfn og gefa okkur saman.

۩ Herbjörn Hafralóns hefir hjér með verið skipaður Sjérlegur aðstoðarmaður Heiðglyrnis og skulu þeir tala sig saman um hvernig athöfnin fer fram!

۩ Þarfagreini hlotnast það mikilvæga hlutverk að vera "Faðir Brúðarinnar" og leiða Hundslappadrífu upp að altarinu!

۩ Nú þegar hefir staðsetning verið ákveðin, en Don De Vito, sá öðlingur hefur boðið okkur Hringleikahús sitt til afnota fyrir brúðkaupsathöfn og veislu. ‹Hvar sem hann nú er›

۩ Vladimir Fuckov háttvirtur Forseti vor, hefir verið útnefndur Einstakur Forseti öryggismála og Heiðursdyravörður og felst starfið í því að hafa yfirumsjón yfir öllu sem viðkemur öryggi brúðkaupsins, veislunnar og Skýjafeykisfylgd. Felur starfið einnig í sjér yfirmennsku allra öryggismála, s.s. dyravörslu, vopnaleit, sætavísun o.þ.h.

۩ Skari mun sjá um Sprengjusjóv, sem og ljósa- og leysersjóv eftir Athöfnina og í Veislunni! Kemur einnig með RASSAT sem sjér um öryggisgæslu og sem Yfirmaður þar, svarar hann til Vladimirs Fuckov!

۩ Albin skal skipaður sjérlegur aðstoðarmaður Vladimirs, en hefir þó að mestu frjálsar hendur með snæperinn!

۩ Húmbaba, sá heiðursmaður, hefir boðið Brúðhjónunum Höll sína í Sígrænaskógi til afnota á Brúðkaupsnóttina! ‹skal málið sett í nefnd og svarað innan tíðar!›

۩ Upprifinn hinn undraverði, bauðst til að ljá Brúðhjónunum Spilahöll Lomberklúbbs Baggalútíska Heimsveldisins yfir Brúðkaupsnóttina! ‹skal málið sett í nefnd og svarað innan tíðar!›

۩ Brauðfótur varð fyrir valinu sem blindfullur frændi, sem mjög þykir dýr á fóðrun og enginn vill þekkja!

۩ Stelpið sýndi mikinn áhuga á að vera blindfulla frænkan sem lumar á Jagermeisterpela við öll tækifæri! Var umsóknin einróma samþykkt og hún ráðin á staðnum! Er hún einnig í forsvari fyrir Gæsagleði Hundslappadrífu í Neðra!

۩ Offari tók strax að sjér að vera Forsvarsmaður Steggjapartýs Slopps og bakaði meira að segja strippdömuköku!

۩ Hvæsi hafði lofað oss að sjá um veitingarnar og að sjérstakri beiðni Hundslappadrífu í Neðra, mun verða boðið upp á rautt pestó í tonnavís! - Pamela Í Dallas pantaði að vera Sjérlegur Smakkari hjá Hvæsa auk þess að vera SvaraSloppa!

۩ Ísdrottningin sjér til þess að eigi muni ísmola skorta í drykki gestanna!

۩ Hexía De Trix ætlar að koma með Brúðarkakó og mun sjá um drykki handa brúðkaupsgestum. Einnig verður í boði Frostlögur!

۩ Ívar Sívertsen sjér um almenn frammíköll og óþarfa hávaða sem ekki á við í Brúðkaupum! Er einnig Hetjutenór í enn sem komið er, eins manns Kórnum!

۩ Skoffín, sem er fósturskoffín Hundslappadrífu, verður HeiðursbrúðarSkoffmey og hringaberi Hringanna Einu! Verður hún í tyggjóbleiku og hvítu!

۩ Blóðugt hefir verið valin af sjérstakri ósk Hundslappadrífu í Neðra til að annast söng!

۩ Ferrari var sjálfskipaður Skýjafeykir; Háttsettur ekill brúðhjónanna!

۩ Anna Panna verður Aðstoðarhönnuður Brúðkaupsfarartækis í nánu samsstarfi við Ferrari, Skýjafeyki!

۩ Útvarpsstjóri mun að sjálfssögðu vera með beina útvarpssendingu frá Athöfninni og Veislunni á Ísafold! Mun hann einnig flytja heiðursskálarræðu Brjúðhjónanna, en eftir hana verður þeim, er enn verða vakandi, frjálst að kveða sjér hljóðs og heiðra Brúðhjónin!

۩ Voff verður mögulegur lögfræðingur Brúðhjóna! Tók einnig að sjér að "merkja" alla ljósastaura í nánd við Hringleikahúsið! ‹Það mál skal sett í nefnd og rætt við Vladimir Fuckov, Forseta Öryggismála!›

۩ Gísli Eiríkur og Helgi sótti um starfið "Erlendir Gestir" og vitum vjér eigi um hentugra starf!

۩ Sphinxx hefir verið ráðinn róni, sem sefur úr sjér á aftasta bekk!

۩ Jenna Djamm mun sjá um dansatriði uppi á HáLangborðinu og fær nafnið Borðsjeiker!

۩ Herbjörn Hafralóns, Offari og Ferrari hafa boðist til að sjá um tengingaborð og fleiri leiki og verður mál það sett í nefnd og svarað innan skamz! Mál þetta hefir verið samþykkt af Sloppi !

۩ Dordingull verður drykkjurútur Veizlunnar, sem mun klára koníaksbirgðirnar áður en fyrsta ræðan verður flutt!

۩ Sæmi fróði hefir verið ráðinn Uppistandari, sem gengur um salina sem gömul, fjarskyld frænka, sem þekkt hefir brúðhjónin frá fæðingu og einnig sem klámfenginn frændi, sem kann allar svæsnu sögurnar af Brúðhjónunum!
_____________________________________________________________________

Fleiri hafa eigi verið ráðnir, en Gestapóar eru hvattir til að sækja um þau störf sem til falla og sjé eitthvað starfsheiti sem einhverjir vilja ekki til, má ávallt skoða málin og búa þau til!

Þau störf er uppfundin hafa verið og eru laus:

۩ SvaraSloppar – Vegna mikillar ábyrgðar og mikilvægi þessa starfs, munu 2 – 3 Gestapóar verða ráðnir í þetta hlutverk! - ‹#1› Tumi Tígur ‹#2› Pamela í Dallas ‹Verður Sloppi innan handar í hverju því er hann tekur sjér fyrir hendur!›

۩ Brúðarmeyjar – Ekki eru mikil takmörk fyrir fjölda Brúðarmeyja! - Aulinn í tyggjóbleiku, Sjérútvalin Forystubrúðarmey! ‹mögulegur Forréttur›

۩ Tónlist – Viðkomandi sjér um bókun á hljómsveit! Einnig væri vel liðið ef viðkomandi aðili gæti starfað náið með sjérstakri söngkonu brúðkaupsins! ‹#1› Eiríkur Gísli Eiríkur og Helgi hefir boðist til að spila "Bröllopsvals til Mona Af ABBA Benni Andersson á nefið á sér þar sem hann hefur lengst nef þeirra bræðra.

۩ Veislustjóri – Sá eða sú, er þetta starf hlýtur, hefur yfirumsjón yfir neðangreindum störfum! Sjér einnig um boðsmiða og formleg boð í brúðkaupið. 1 – 2 starfsgildi! Veislustjóri skal þó svara til Vladimirs, Forseta Öryggismála Brúðkaupsins! Enginn er betur til starfans fallinn en Herbjörn Hafralóns!

۩ Blómaberar – Um er að ræða 5 stöðugildi, sem fela í sjér blómatínslu, snyrtingu, skreytingar, blómaburð og allt sem viðkemur blómum athafnarinnar!

۩ Dyravarsla – Þar sem atburður þessi fer fram í Hringleikahúsinu, þarf 4 fílhrausta dyraverði. Störfin henta báðum kynjum, sem og Rússneskum kúluvörpurum. - ‹#1› Tigra útnefnd Yfirdyravörður sem einungis svarar til Vladimirs! ‹#2› Furðuvera, með hnyklaða Tvíhöfða! ‹#3› Tumi Tígur ‹Þó einungis eftir Brúðkaupsathöfnina, þar sem hann er SvaraSloppur!›

۩ Sætavísir – Ekki verða númeruð sæti, en mörgum gestum þarf þó að fylgja til sætis síns og sjá til að allir sjéu prúðbúnir. 2 störf! ‹#1› Dr. Zoidberg, sem einnig er tók að sjér smökkun drykkja og matvæla! ‹#2› Myrkur, sem greinilega þekkir mun á hægri og vinstri!

۩ Almennar skreytingar – Sökum umfangs viðburðarins og stærð Hringleikahússins, er sóst eftir vel skipulögðum og mjög snyrtilegum Gestapóa og er óskað eftir því að Blómaberar og Skreytingastjóri starfi saman í sátt og samlyndi. Anna Panna

۩ Framreiðslumeistarar – Upphaflega var hugmyndin að nota þræla, djöfla, púka og Færeyinga í framreiðslu! Hefur nú verið tekin ákvörðun um að nota hin fyrrnefndu fyrirbæri, séu þau enn á lausu, en þá vantar enn 5 – 10 Framreiðslumeistara, sem skulu vera yfirmenn kvikindanna!

۩ Klæðskeri – Þar sem Sloppur hefir of lítinn tíma til að sjá um sníðingu Sloppa á allt starfsfólk, verður ráðinn klæðskeri til að annast Sloppasauma allra nema brúðhjónanna, en Sloppur sér um þau!
_____________________________________________________________________

Ekki hafa fleiri störf verið uppfundin, en sjé hugmyndaflug í lagi og ekki vilji til að taka að sjér þau störf er þegar hafa verið tekin fram, skal sækja um fleiri starfsheiti hjér fyrir neðan!

Kæru Gestapóar! Enn eru til störf fyrir þá, er vilja, sem og þá er vilja vera neyddir til starfa. Eftir sem áður verða Gæsagleði og Steggjapartý opin fram að Brúðkaupi, svo framarlega sem Brúðhjónin geta mætt merkilega lítið þunn til athafnarinnar!

Yfirbílstjóri Forsetaembættis Baggalútíu ~ Höfðingi Ísfólksins ~ Skraddari Baggalútíska Alheimsveldisins ~ Fíkill ~ Dýflissumeistari í kjallara Teningahallarinnar ~ Hryðjuverkamaður
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sloppur 20/4/06 04:50

Nú styttist óðum í að herlegheitin hefjist! Allir þeir er eigi eru á lista vorum yfir mögulega/núverandi embættismenn/konur í verðandi Brúðkaupi og Veizlu, skulu láta vita hjér eða í einkapósti!

Yfirbílstjóri Forsetaembættis Baggalútíu ~ Höfðingi Ísfólksins ~ Skraddari Baggalútíska Alheimsveldisins ~ Fíkill ~ Dýflissumeistari í kjallara Teningahallarinnar ~ Hryðjuverkamaður
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 20/4/06 10:48

‹blístrar brúðarmarsinn›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hunandar 25/4/06 18:37

Ef þau skötu hjú bjóða mér þá splæsi ég Uuu...m já kjarnorkusprengju.
[color=green]Fjandin Oooo bannað að segja frá pökunum fjandakornið!!!![/color]

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hunandar 25/4/06 19:06

Annsas sagði óvart frá pakanum. 'Upsí deisí, ÉG VERÐ ÞÁ BARA AÐ SPRENGJANA SJÁLFUR

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hunandar 25/4/06 19:26

ICH WILL

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 25/4/06 19:28

Ertu Þjóðverjadjöfull?

KauBfélagsstjórinn.
GESTUR
 • LOKAР• 
Afbæjarmaður 25/4/06 20:00

ÞAÐ ER KOMIÐ STRÍÐ

GESTUR
 • LOKAР• 
Afbæjarmaður 25/4/06 20:02

Ja 1/4 Þjóðverjaskítur restin held ég að sé íslenskt blóð

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... , 11, 12, 13  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: