Ég verð örsjaldan þunnur, og dagurinn í dag er ekki undantekning þar á. Þó drakk ég nokkuð af áfengjum drykkjum í gærnótt.
Eigi erum vjer þunnir en þó jafnframt þunnir til að geta sagst hafa verið eigi þunnir eða þunnir eftir því sem við á sje eigi ekki því er nafni þráðarins tilheyrir ekki beitt á þann hátt er gefið hefur verið í skyn eða ekki gefið í skyn ofar eða ekki ofar í þræðinum Verður ringlaður (eða ekki ringlaður).
Ég!
Kemst að þeirri niðurstöðu að þeir sem hingað til hafi skrifað undir þennan þráð hljóti að vera þunnir, vegna tvöfaldrar neitunar
Þessi færsla var í boði Vladimir Fuckov
Reynir að viðhalda virðugleika forsetaembættisins með því að setja upp fýlusvip og strunsa út af sviðinu og skella á eftir sjer en gengur illa að halda niðri í sjer hlátrinum
Fæ ekki timburmenn því það rennur aldrei af mér.
Hverjum hefði dottið í hug að Kaffi Stígur væri "heitur reitur" ? Stekkur hæð sína
Hlær sig máttlausa
Þar sem þynnka helst í hendur við drykkju er ég ekki þunn.
Ég er ekki þunnur, en ég er afskaplega syfjaður, telst það með ?
Geispar óstjórnlega og hallar sér fram á skrifborðið
Aldrei þunnur. Alltaf fullur! MÚHAHAHAHA!!!
Ég er ekki þunnur þó runnu niður nokkrir bjórar í gærkveldi. Í morgun var ég furðu hress og ár risull.
Ég er fínn núna. En væri svo sannarlega til í að vera þunnur á sunnudaginn!
Ég er fínn núna. En væri svo sannarlega til í að vera þunnur á sunnudaginn!
xT Og líka á mánudaginn.xT
Ef maður verður aldrei þunnur, þá hefur maður aldrei drukkið nóg.
Ég drekk aldrei nóg.
Ég er bara þunnur þegar ég þarf þess.
Ég varð einu sinni þunnur og nenni ekkert að prófa það aftur.
Hver er skilgreiningin á þunnur?
Í sentimetrum?
Einn daginn, þegar ég var í vinnunni, leitaði ég mér hjálpar frá vinum mínum í gegnum netið.
Ég var með dúndrandi höfuðverk, svakalega ógleði, og það eina sem ég vildi gera var að leggjast á kalt gólfið, slökkva öll ljós, og bíða eftir að ég næði aftur stjórn á líkama mínum.
Mér var sagt að þetta væri þynnka.
Þetta er eina þynnkan sem ég hef nokkurn tíman upplifað.
En það kom ekkert áfengi hér við sögu. Fyrr um daginn hafði ég nefnilega verið hjá tannlækni.
Málið er að ég er afar þolinn þegar kemur að lyfjum og svoleiðis, sérstaklega verkjastillandi og svoleiðis.
Tannsi þurfti að bæta á og sprauta aftur og aftur til að ég þyldi tannviðgerðina sem stóð yfir.
Þegar deyfingin sleppti varð ég semsagt svona ógeðslega þunnur.
Aldrey hefur áfengið gert mér þennann grikk, og ég er þakklátur fyrir það.
Ég er allaveganna akki þunnur núna, enda ekkert drukkið síðan á laugardagskvöldið.
Ef maður verður aldrei þunnur, þá hefur maður aldrei drukkið nóg.
Betra er að hafa þetta eins og sagði í kveðskap er fluttur var á einhverri árshátíðinni (líklega 2005; kannski ekki alveg orðrjett en efnislega 100% rjett):
Sá sem fullur alltaf er
aldrei verður þunnur
Ég er ekkert svo þunnur núna.