Ég! Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ekki ég Ljómar upp
Og ekki ég.
En ég mun gera mitt allra besta til að vera skelþunnur í fyrramálið.
Ég!
Kemst að þeirri niðurstöðu að þeir sem hingað til hafi skrifað undir þennan þráð hljóti að vera þunnir, vegna tvöfaldrar neitunar
Þessi færsla var í boði Vladimir Fuckov
Þunnur? Ég er of þykkur. Blótar herfilega og strýkur ýstruna
Þú lítur út fyrir að vera svolítið veðraður líka trölli, sem er nátturulega bara gott.
Ég! Ligga ligga lái.
Ég verð aldrei þunnur og þess vegna er ég ekki þunnur núna þrátt fyrir gríðarlega drykkju, lyfjaneyslu, sukk og svall í gærkvöldi.
En kindurnar mínar eru að drepast.
Fæ ekki timburmenn því það rennur aldrei af mér.
Hverjum hefði dottið í hug að Kaffi Stígur væri "heitur reitur" ? Stekkur hæð sína
Ég er ekki þunn, enda svaf ég í allan dag og drakk helling af kaffi með áfenginu í gærkvöld.